Prestar, takið þetta til ykkar: Ef þið hlustið ekki og látið ykkur ekki umhugað um að halda nafn mitt í heiðri, segir Drottinn hersveitanna, sendi ég bölvunina yfir ykkur og sný blessun ykkar í bölvun. Já, ég sný henni í bölvun því að þið hafið ekki gætt þessa heils hugar. Sjá, ég ógna uppskeru ykkar og eys ásjónur ykkar auri, saurnum frá hátíðum ykkar, og varpa ykkur á haugana frá þeim. Þá skuluð þið játa að ég hef skipað ykkur þetta svo að sáttmáli minn við Leví fengi staðist, segir Drottinn hersveitanna. Sáttmáli minn var honum líf og heill, hvort tveggja gaf ég honum og guðsótta að auki. Hann átti að óttast mig og sýna nafni mínu lotningu. Sönn kenning var í munni hans og svik fundust ekki á vörum hans. Hann fylgdi mér í friði og heils hugar og sneri mörgum frá syndugu líferni. Því að varir prestsins varðveita þekkingu og menn leita lögmálsfræðslu af munni hans því að hann er boðberi Drottins hersveitanna. En þið hafið vikið af veginum og fellt marga með leiðsögn ykkar. Þið hafið spillt sáttmálanum við Leví, segir Drottinn hersveitanna. Ég geri ykkur fyrirlitlega og niðurlægi ykkur frammi fyrir öllu fólkinu af því að þið fylgið ekki mínum vegum og eruð hlutdrægir þegar þið leiðbeinið.