Náðugur og miskunnsamur er Drottinn,
þolinmóður og mjög gæskuríkur.
Drottinn er öllum góður
og miskunn hans hvílir yfir allri sköpun hans.
Öll verk þín lofa þig, Drottinn,
og dýrkendur þínir vegsama þig.
Þeir segja frá dýrð ríkis þíns
og tala um mátt þinn
til að boða mönnum veldi þitt,
hina dýrlegu hátign konungdæmis þíns.
Konungdæmi þitt varir um allar aldir
og vald þitt stendur frá kyni til kyns.
Drottinn styður alla þá sem hníga
og reisir upp alla niðurbeygða.
Allra augu vona á þig,
þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma,
lýkur upp hendi þinni
og seður allt sem lifir með blessun.
Drottinn er réttlátur á öllum vegum sínum
og miskunnsamur í öllum verkum sínum.
Drottinn er nálægur öllum sem ákalla hann,
öllum sem ákalla hann í einlægni.
Hann uppfyllir óskir þeirra sem óttast hann
og hróp þeirra heyrir hann og hjálpar þeim.
Drottinn varðveitir þá sem elska hann
en eyðir öllum óguðlegum.
Munnur minn skal syngja Drottni lof,
allt hold skal lofa hans heilaga nafn um aldur og ævi.