Biblíulestur 19. janúar – Esk 3.16–27
Að sjö dögum liðnum kom orð Drottins til mín: „Mannssonur, ég hef gert þig að verði Ísraelsmanna. Þegar þú heyrir orð af munni mínum átt þú að vara þá við í mínu nafni. Þegar ég segi við guðlausan mann: Þú skalt vissulega deyja, og þú hefur hvorki varað hinn guðlausa við né áminnt hann um að láta af guðlausri breytni sinni svo að hann haldi lífi, þá er hann sekur: Hann skal deyja vegna syndar sinnar en blóðs hans mun ég krefjast úr hendi þinni. Ef þú hefur varað hinn guðlausa við, en hann ekki horfið frá guðleysi sínu og guðlausri breytni, skal hann deyja vegna syndar sinnar en þú hefur bjargað lífi þínu. Þegar réttlátur maður snýr frá réttlæti sínu og fremur ranglæti læt ég hann hrasa: Hann skal deyja. Hafir þú ekki varað hann við skal hann deyja vegna syndar sinnar og réttlátra verka, sem hann hefur unnið, skal ekki minnst. En blóðs hans mun ég krefjast úr þinni hendi. Hafir þú hins vegar varað hinn réttláta við því að syndga og hann hefur ekki syndgað mun hann vissulega lifa því að hann lét sér segjast og þú hefur bjargað lífi þínu.“
Hönd Drottins kom yfir mig og hann sagði við mig: „Rístu á fætur og farðu út á sléttuna, þar mun ég tala við þig.“ Ég reis á fætur og fór út á sléttuna. Þar var dýrð Drottins. Hún stóð þar eins og dýrðin sem ég hafði séð við Kebarfljót og ég féll fram á ásjónu mína. Þá kom í mig andi og reisti mig á fætur. Hann ávarpaði mig og sagði: „Farðu heim og lokaðu þig inni í húsi þínu. Þú, mannssonur, verður lagður í bönd og bundinn svo að þú komist ekki út til þeirra. Ég mun láta tunguna loða við góm þér svo að þú missir málið og verðir ófær um að áminna þá, því að þeir eru þvermóðskufullir. En þegar ég tala við þig mun ég ljúka upp munni þínum og þú skalt segja við þá: Svo segir Drottinn Guð. Sá sem heyra vill, hann heyri, en sá sem ekki vill hlusta láti það ógert því að þeir eru þverúðugt fólk.
Biblíulestur 25. júní – Okv 10.13–32
Viska er á vörum hyggins manns en á baki hins óvitra dynur vöndurinn. Vitrir menn geyma þekkingu sína en orð afglapans boða bráða glötun. Auður ríks manns er honum öflugt [...]
Biblíulestur 24. júní – Lúk 1.57–67, 76–80
Nú kom sá tími að Elísabet skyldi verða léttari og ól hún son. Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni og samfögnuðu henni. Á [...]
Biblíulestur 23. júní – Sak 11.1–17
Ljúk upp hliðum þínum, Líbanon, svo að eldurinn geti eytt sedrustrjám þínum. Kveina, kýprusviður, nú er sedrustréð fallið. Barmið yður, eikur Basans, burtu er skógurinn mikli. Heyr kveinstafi smalanna. Sæmd [...]
Biblíulestur 22. júní – Sak 10.1–12
Biðjið Drottin um regn þegar regntíð seinkar, Drottin, sem eldingarnar sendir, um regn og skúrir. Hann gefur mönnum brauð og gróður jarðar. Orð húsguðanna voru ómerk og spásagnamennirnir sáu tálsýnir. [...]
Biblíulestur 21. júní – Sak 9.1–17
Spádómur. Orð Drottins mun dveljast í Hadraklandi og Damaskus því að sjónir allra manna hvíla á Drottni eins og augu Ísraels ætta. Einnig í Hamat, sem er þar nærri, og [...]
Biblíulestur 20. júní – Sak 8.18–23
Orð Drottins kom til mín: Svo segir Drottinn allsherjar: Fastan í fjórða mánuði, fastan í fimmta mánuði, fastan í sjöunda mánuði og fastan í hinum tíunda verða ætt Júda til [...]