Biblíulestur 20. janúar – Opb 1.1–11
Opinberun Jesú Krists sem Guð gaf honum til að sýna þjónum sínum það sem verða á innan skamms. Jesús Kristur sendi engil sinn og lét hann kynna það Jóhannesi, þjóni sínum, sem bar vitni um orð Guðs og vitnisburð Jesú Krists um allt það er hann sá. Sæll er sá er les þessi spádómsorð og sælir eru þeir sem heyra þau og varðveita það sem í þeim er ritað því að tíminn er í nánd.
Frá Jóhannesi til safnaðanna sjö í Asíu.
Náð sé með yður og friður frá honum sem er og var og kemur og frá öndunum sjö sem eru frammi fyrir hásæti hans og frá Jesú Kristi sem er votturinn trúi, frumburður upprisunnar frá dauðum, höfðinginn yfir konungum jarðar.
Hann elskar oss og leysti oss frá syndum vorum með blóði sínu. Og hann gerði oss að konungum og prestum, Guði sínum og föður til handa. Hans er dýrðin og mátturinn um aldir alda. Amen.
Sjá, hann kemur í skýjunum og hvert auga mun sjá hann, jafnvel þeirra sem stungu hann, og allar kynkvíslir jarðarinnar munu kveina yfir honum. Vissulega, amen.
„Ég er Alfa og Ómega, hann sem er og var og kemur, hinn alvaldi,“ segir Drottinn Guð.
Ég, Jóhannes, bróðir yðar, sem í Jesú á hlutdeild með yður í þrengingunni, ríkinu og þolgæðinu, var á eynni Patmos sakir Guðs orðs og vitnisburðarins um Jesú. Ég var hrifinn í anda á Drottins degi og heyrði að baki mér raust mikla, sem lúður gylli, er sagði: „Rita þú í bók það sem þú sérð og send það söfnuðunum sjö í Efesus, Smyrnu, Pergamos, Þýatíru, Sardes, Fíladelfíu og Laódíkeu.“
Biblíulestur 1. júlí – Lúk 7.1–17
Þá er Jesús hafði lokið við að tala við fólkið fór hann til Kapernaúm. Hundraðshöfðingi nokkur hafði þjón sem hann mat mikils. Þjónninn var sjúkur og dauðvona. Þegar hundraðshöfðinginn heyrði [...]
Biblíulestur 30. júní – Sak 14.12–21
Yfir allar þjóðir sem herjuðu á Jerúsalem mun Drottinn senda plágu: Hann mun láta hold þeirra rotna meðan þeir standa enn í fæturna, augu þeirra lætur hann morkna í augnatóttunum [...]
Biblíulestur 29. júní – Sak 14.1–11
Sjá, sá dagur kemur frá Drottni að herfangi þínu verður skipt í þér miðri. Ég mun safna öllum þjóðunum til hernaðar gegn Jerúsalem, borgin verður tekin, húsin rænd og konunum [...]
Biblíulestur 28. júní – Sak 13.1–9
Á þeim degi opnast lind fyrir Davíðs ætt og Jerúsalembúa til að þvo burt syndir og óhreinleika. Á þeim degi, segir Drottinn allsherjar, afmái ég nöfn skurðgoðanna úr landinu. Þeirra [...]
Biblíulestur 27. júní – Sak 12.1–14
Spádómur. Orð Drottins um Ísrael. Svo segir Drottinn sem þandi út himininn, grundvallaði jörðina og myndaði andann í brjósti mannsins: Ég geri Jerúsalem að vímuskál handa öllum þjóðunum sem umhverfis [...]
Biblíulestur 26. júní – Lúk 14.16–24
Jesús sagði við hann: „Maður nokkur gerði mikla kvöldmáltíð og bauð mörgum. Er stundin kom að veislan skyldi vera sendi hann þjón sinn að segja þeim er boðnir voru: Komið, [...]