Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 21. janúar – Opb 1.12–20

Ég sneri mér við til að sjá hvers raust það væri sem við mig talaði. Og er ég sneri mér við sá ég sjö gullljósastikur og milli ljósastikanna einhvern, líkan mannssyni, klæddan skósíðum kyrtli og gullbelti var spennt um bringu hans. Höfuð hans og hár var hvítt eins og hvít ull, eins og mjöll, og augu hans eins og eldslogi. Og fætur hans voru sem glóandi málmur í eldsofni og raust hans sem niður mikilla vatna. Hann hafði í hægri hendi sér sjö stjörnur og beitt, tvíeggjað sverð gekk út af munni hans og ásjóna hans skein sem sólin í mætti sínum.
Þegar ég sá hann féll ég fyrir fætur honum sem dauður væri. Og hann lagði hægri hönd sína yfir mig og sagði: Vertu ekki hræddur, ég er hinn fyrsti og hinn síðasti og hinn lifandi. Ég dó en nú lifi ég um aldir alda og ég hef lykla dauðans og heljar. Rita þú nú það er þú sérð, bæði það sem er og það sem verður eftir þetta. Þessi er leyndardómurinn um stjörnurnar sjö, sem þú hefur séð í hægri hendi minni, og um gullstikurnar sjö. Stjörnurnar sjö eru englar þeirra sjö safnaða og ljósastikurnar sjö eru söfnuðirnir sjö.

Biblíulestur 6. júlí – Lúk 8.1–18

Eftir þetta fór Jesús um, borg úr borg og þorp úr þorpi, prédikaði og flutti fagnaðarerindið um Guðs ríki. Með honum voru þeir tólf og konur nokkrar er læknaðar höfðu [...]

Biblíulestur 4. júlí – Lúk 7.18–35

Lærisveinar Jóhannesar sögðu honum frá öllu þessu. Jóhannes kallaði þá til sín tvo lærisveina sína, sendi þá til Drottins og lét spyrja: „Ert þú sá sem koma skal eða eigum [...]

Biblíulestur 3. júlí – Lúk 15.1–10

Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: „Þessi maður tekur að sér syndara og samneytir þeim.“ En [...]

Biblíulestur 2. júlí – Slm 146

Hallelúja. Lofa þú Drottin, sála mín. Ég vil lofa Drottin á meðan ég lifi, lofsyngja Guði mínum meðan ég er til. Treystið eigi tignarmönnum, mönnum sem enga hjálp geta veitt. [...]

Fara efst