Biblíulestur – 13. desember – Slm 109.21—31
En þú, Drottinn, Guð minn, breyt vel við mig sakir nafns þíns,
frelsa mig sakir gæsku þinnar og miskunnar
því að ég er hrjáður og snauður,
hjartað berst í brjósti mér.
Ég hverf sem skugginn er degi hallar,
ég er flæmdur burt eins og engispretta,
hné mín skjögra af föstu
og hold mitt skortir feiti.
Ég er orðinn mönnum að spotti,
þeir hrista höfuðið þegar þeir sjá mig.
Hjálpa mér, Drottinn, Guð minn,
bjarga mér eftir miskunn þinni,
að þeir megi komast að raun um að það var þín hönd,
að það varst þú, Drottinn, sem gerðir það.
Bölvi þeir, blessar þú,
rísi þeir gegn mér verði þeir til skammar
en þjónn þinn gleðjist.
Andstæðingar mínir íklæðist svívirðing,
sveipi sig skömminni eins og skikkju.
Ég vil lofa Drottin með munni mínum,
í fjölmenni vegsama ég hann
því að hann stendur við hlið hins snauða
til að hjálpa honum gegn þeim sem sakfella hann.
Biblíulestur 8. júlí – Lúk 8.40–9.6
En er Jesús kom aftur fagnaði mannfjöldinn honum því að allir væntu hans. Þá kom þar maður, Jaírus að nafni, forstöðumaður samkundunnar. Hann féll til fóta Jesú og bað hann [...]
Biblíulestur 7. júlí – Lúk 8.19–39
Móðir Jesú og bræður komu til hans en gátu ekki náð fundi hans vegna mannfjöldans. Var honum sagt: „Móðir þín og bræður standa úti og vilja finna þig.“ En Jesús [...]
Biblíulestur 6. júlí – Lúk 8.1–18
Eftir þetta fór Jesús um, borg úr borg og þorp úr þorpi, prédikaði og flutti fagnaðarerindið um Guðs ríki. Með honum voru þeir tólf og konur nokkrar er læknaðar höfðu [...]
Biblíulestur 5. júlí – Lúk 7.36–50
Farísei nokkur bauð Jesú til máltíðar og hann fór inn í hús faríseans og settist til borðs. En kona ein í bænum, sem var bersyndug, varð þess vís að hann [...]
Biblíulestur 4. júlí – Lúk 7.18–35
Lærisveinar Jóhannesar sögðu honum frá öllu þessu. Jóhannes kallaði þá til sín tvo lærisveina sína, sendi þá til Drottins og lét spyrja: „Ert þú sá sem koma skal eða eigum [...]
Biblíulestur 3. júlí – Lúk 15.1–10
Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: „Þessi maður tekur að sér syndara og samneytir þeim.“ En [...]