Biblíulestur 30. janúar – Opb 6.1–11
Og ég sá er lambið rauf hið fyrsta af innsiglunum sjö og ég heyrði eina af verunum fjórum segja með þrumuraust: „Kom!“ Ég leit upp og sjá: Hvítur hestur. Sá sem á honum sat hélt á boga og honum var fengin kóróna og hann fór út sigrandi og til þess að sigra.
Þegar lambið rauf annað innsiglið heyrði ég aðra veruna segja: „Kom!“ Þá gekk út annar hestur rauður. Þeim sem á honum sat var fengið sverð mikið og gefið vald að taka burt friðinn af jörðunni til þess að menn brytjuðu hverjir aðra niður.
Þegar lambið rauf þriðja innsiglið heyrði ég þriðju veruna segja: „Kom!“ Ég leit upp og sjá: Svartur hestur og sá er á honum sat hafði vogarskálar í hendi sér. Og ég heyrði rödd koma frá verunum fjórum er sagði: „Mælir hveitis fyrir daglaun og þrír mælar byggs fyrir daglaun en eigi skalt þú spilla olíunni og víninu.“
Þegar lambið rauf fjórða innsiglið heyrði ég rödd fjórðu verunnar er sagði: „Kom!“ Og ég leit upp og sjá: Bleikur hestur og sá er á honum sat hét Dauði, og Hel var í för með honum. Þeim var gefið vald yfir fjórða hluta jarðarinnar og áttu að deyða mennina í styrjöldum, í hungursneyð og drepsóttum og láta menn farast fyrir villidýrum jarðarinnar.
Þegar lambið rauf fimmta innsiglið sá ég undir altarinu sálir þeirra manna sem drepnir höfðu verið sakir Guðs orðs og vitnisburðarins sem þeir höfðu borið. Og þeir hrópuðu hárri röddu og sögðu: „Hversu lengi skal bíða þess, þú Alvaldur, heilagur og sannur, að þú dæmir og hefnir blóðs vors á íbúum jarðar?“ Og þeim var fengin, hverjum og einum, hvít skikkja. Og þeim var sagt að þeir skyldu enn hvílast litla hríð, þangað til trúsystkin þeirra, sem þjónuðu Guði eins og þeir, fylltu töluna. Þau áttu að deyðast eins og þeir.
Biblíulestur 30. ágúst – Ób 1.1–14
Vitrun Óbadía. Tíðindi hafa borist frá Drottni og boðberi er sendur til þjóðanna: „Komum nú. Herjum á Edómíta.“ Svo segir Drottinn Guð um Edóm: Þig geri ég smæstan meðal þjóða, [...]
Biblíulestur 29. ágúst – Matt 28.1–20
Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina. Þá varð landskjálfti mikill því engill Drottins sté niður [...]
Biblíulestur 28. ágúst – Lúk 18.9–14
Jesús sagði líka dæmisögu þessa við nokkra þá er treystu því að sjálfir væru þeir réttlátir en fyrirlitu aðra: „Tveir menn fóru upp í helgidóminn að biðjast fyrir. Annar var [...]
Biblíulestur 27. ágúst – Okv 11.12–21
Óvitur maður sýnir náunga sínum fyrirlitningu en vitur maður þegir. Rógberinn ljóstrar upp leyndarmáli en hinn þagmælski virðir trúnað. Án stjórnar tortímist herinn en séu ráðgjafar margir getur allt farið [...]
Biblíulestur 26. ágúst – Matt 27.45–66
En frá hádegi varð myrkur um allt land til nóns. Og um nón kallaði Jesús hárri röddu: „Elí, Elí, lama sabaktaní!“ Það þýðir: „Guð minn, Guð minn, hví hefur þú [...]
Biblíulestur 25. ágúst – Matt 27.32–44
Á leiðinni hittu þeir mann frá Kýrene er Símon hét. Hann neyddu þeir til að bera kross Jesú. Og er þeir komu til þess staðar er heitir Golgata, það þýðir [...]