Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 31. janúar – Okv 27.15–27

Sífelldur þakleki í rigningatíð og þrasgjörn kona
er hvað öðru líkt,
sá er hana stöðvar stöðvar vindinn
og heldur á olíu í hægri hendi.
Járn brýnir járn
og maður brýnir mann.
Sá sem gætir fíkjutrés mun njóta ávaxtar þess
og sá sem annast húsbónda sinn hlýtur sæmd.
Andlit horfir við andliti í vatni,
svo er hjarta eins manns gagnvart öðrum.
Dánarheimar og undirdjúpin eru óseðjandi,
svo eru og augu mannsins óseðjandi.
Deiglan reynir silfrið og bræðsluofninn gullið
en maðurinn er metinn eftir orðstír sínum.
Þótt þú steytir heimskingjann í mortéli ásamt korni
mun heimska hans ekki skilja við hann.
Gefðu nákvæmar gætur að sauðum þínum
og annast um hjarðir þínar
því að hvorki vara eignir að eilífu
né kóróna frá kyni til kyns.
Sé heyið hirt og háin tekin að spretta
og hafi jurtum fjallanna verið safnað
átt þú lömb þér til klæðnaðar,
geithafra til þess að kaupa fyrir akur
og nóga geitamjólk þér til fæðslu,
heimili þínu til matar og til viðurværis þernum þínum.

Biblíulestur 5. september – Tít 3.3–15

Því að þeir voru tímarnir að við vorum einnig óskynsöm, óhlýðin, villuráfandi, í ánauð hvers konar fýsna og lostasemda. Við ólum aldur okkar í illsku og öfund, vorum andstyggileg, hötuðum [...]

Biblíulestur 4. september – Mrk 7.31–37

Síðan hélt Jesús úr Týrusarbyggðum, um Sídon og yfir Dekapólisbyggðir miðjar til Galíleuvatns. Þá færa menn til hans daufan og málhaltan mann og biðja hann að leggja hönd sína yfir [...]

Biblíulestur 3. september – Slm 18.14-28

Þá þrumaði Drottinn á himni, Hinn hæsti lét raust sína gjalla gegnum hagl og eldglæringar. Hann skaut örvum langt og víða, slöngvaði eldingum og tvístraði þeim. Þá sá í mararbotn, [...]

Biblíulestur 2. september – Tít 2.1–3.2

En tala þú það sem sæmir hinni heilnæmu kenningu. Aldraðir karlmenn skulu vera bindindissamir, heiðvirðir, hóglátir, heilbrigðir í trúnni, kærleikanum og þolgæðinu. Svo eiga og aldraðar konur að vera í [...]

Fara efst