Biblíulestur 28. janúar – Opb 4.1–11
Eftir þetta sá ég, og sjá: Opnar dyr á himninum og raustin, sem hljómaði sem lúður gylli og ég hafði heyrt áður, sagði við mig: „Stíg upp hingað og ég mun sýna þér það sem verða á eftir þetta.“ Jafnskjótt var ég hrifinn í anda. Þar stóð hásæti á himni og einhver sat í því sem var ásýndum líkur jaspissteini og sardissteini og regnbogi var kringum hásætið sem smaragður á að sjá. Umhverfis hásætið voru tuttugu og fjögur hásæti. Í þeim sátu tuttugu og fjórir öldungar skrýddir hvítum klæðum og voru gullkórónur á höfðum þeirra. Út frá hásætinu gengu eldingar, dunur og þrumur og sjö eldblys brunnu frammi fyrir hásætinu. Það eru þeir sjö andar Guðs. Og frammi fyrir hásætinu var sem glerhaf, líkt kristalli.
Fyrir miðju hásætinu og umhverfis hásætið voru fjórar verur alsettar augum í bak og fyrir. Fyrsta veran var lík ljóni, önnur veran lík uxa, þriðja veran hafði ásjónu sem maður og fjórða veran var lík fljúgandi erni. Verurnar fjórar höfðu hver um sig sex vængi og voru alsettar augum, allt um kring og að innanverðu. Dag og nótt syngja þær án afláts:
Heilagur, heilagur, heilagur,
Drottinn Guð, hinn alvaldi,
hann sem var og er og kemur.
Þegar verurnar vegsama, heiðra og þakka honum, sem í hásætinu situr og lifir um aldir alda, þá falla öldungarnir tuttugu og fjórir niður frammi fyrir honum, sem í hásætinu situr, og tilbiðja hann, sem lifir um aldir alda, og varpa kórónum sínum niður fyrir hásætinu og segja:
Verður ert þú, Drottinn vor og Guð,
að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn
því að þú hefur skapað alla hluti
og að þínum vilja urðu þeir til og voru skapaðir.
Biblíulestur 18. ágúst – Matt 26.30–46
Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn fóru þeir til Olíufjallsins. Þá segir Jesús við þá: „Á þessari nóttu munuð þið allir hafna mér því að ritað er: Ég mun slá hirðinn [...]
Biblíulestur 17. ágúst – Matt 26.17–29
Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: „Hvar vilt þú að við búum þér páskamáltíðina?“ Hann mælti: „Farið til ákveðins manns í borginni og segið við [...]
Biblíulestur 16. ágúst – Matt 26.1–16
Þegar Jesús hafði lokið þessari ræðu sagði hann við lærisveina sína: „Þið vitið að eftir tvo daga eru páskar. Þá verður Mannssonurinn framseldur til krossfestingar.“ Æðstu prestarnir og öldungarnir söfnuðust [...]
Biblíulestur 15. ágúst – Matt 25.31–46
Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og allir englar með honum, þá mun hann sitja í dýrðarhásæti sínu. Allar þjóðir munu safnast frammi fyrir honum og hann mun skilja þær [...]
Biblíulestur 14. ágúst – Lúk 16.1–9
Enn sagði Jesús við lærisveina sína: „Maður nokkur ríkur hafði ráðsmann og var honum sagt að ráðsmaðurinn sóaði eigum hans. Ríki maðurinn lét kalla ráðsmanninn fyrir sig og sagði við [...]
Biblíulestur 13. ágúst – Slm 6
Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur. Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni, tyfta mig ekki í heift þinni. Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna [...]