Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur.
Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni,
tyfta mig ekki í heift þinni.
Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota,
lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta.
Sál mín er skelfingu lostin,
Drottinn, hversu lengi?
Snú þú aftur, Drottinn, bjarga lífi mínu,
hjálpa mér sakir elsku þinnar.
Þar sem enginn minnist þín í dánarheimum,
hver lofar þig þá í helju?
Ég er úrvinda af andvörpum mínum,
lauga rekkju mína tárum hverja nótt,
væti hvílu mína táraflóði.
Augu mín eru döpur af harmi,
sljó vegna allra óvina minna.
Víkið frá mér, allir illvirkjar,
því að Drottinn hefur heyrt grát minn,
Drottinn hefur hlustað á ákall mitt,
Drottinn hefur bænheyrt mig.
Allir fjandmenn mínir verða til skammar og skelfast,
hraða sér sneyptir burt.