Biblíulestur 20. febrúar – Opb 15.1–8
Og ég sá annað tákn á himni, mikið og undursamlegt: Sjö engla sem höfðu sjö síðustu plágurnar því að með þeim lauk reiði Guðs.
Og ég leit sem glerhaf eldi blandið. Þeir sem höfðu unnið sigur á dýrinu og líkneski þess, og létu töluna sem táknar nafn þess ekki villa um fyrir sér, stóðu við glerhafið og héldu á hörpum Guðs. Þeir sungu söng Móse, þjóns Guðs, og söng lambsins:
Mikil og dásamleg eru verk þín,
Drottinn Guð, þú alvaldi,
réttlátir og sannir eru vegir þínir,
þú konungur aldanna.
Hver skyldi ekki óttast þig, Drottinn, og vegsama nafn þitt?
Því að þú einn ert heilagur,
allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér
því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.
Og eftir þetta sá ég að upp var lokið musteri Guðs á himni, vitnisburðartjaldbúðinni. Englarnir sjö, sem höfðu plágurnar sjö, gengu þá út úr musterinu klæddir hreinu, skínandi líni og gyrtir gullbeltum um brjóst. Og englunum sjö fékk ein af verunum fjórum sjö gullskálar, fullar reiði Guðs, hans sem lifir um aldir alda. Og musterið fylltist af reyknum af dýrð Guðs og mætti hans og enginn mátti ganga inn í musterið uns plágurnar sjö, frá englunum sjö, væru hjá liðnar.
Biblíulestur 8. janúar – Jóh 1.29–34
Daginn eftir sér Jóhannes Jesú koma til sín og segir: „Sjá, Guðs lamb sem ber synd heimsins. Þar er sá er ég sagði um: Eftir mig kemur maður sem er [...]
Biblíulestur 7.1.2023 – Slm 37.25–40
Ungur var ég og gamall er ég orðinn en aldrei sá ég réttlátan mann yfirgefinn eða niðja hans biðja sér matar. Ætíð er hann mildur og fús til að lána [...]
Biblíulestur 6. janúar – Matt 2.13–15
Þegar vitringarnir voru farnir þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi og segir: „Rís upp, tak barnið og móður þess og flý til Egyptalands. Þar skaltu vera uns ég segi [...]
Biblíulestur 5. janúar – Róm 8.12–23
Þannig erum við, systkin, í skuld, ekki við eigin hyggju að við skyldum lúta henni því að ef þið gerið það munuð þið deyja. En ef þið látið anda Guðs [...]
Biblíulestur 4. janúar – Jóh 8.31–41
Þá sagði Jesús við Gyðingana, sem tekið höfðu trú á hann: „Ef þér farið eftir því sem ég segi eruð þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn [...]
Biblíulestur 3. janúar – Lúk 22.14–30
Og er stundin var komin gekk Jesús til borðs og postularnir með honum. Og hann sagði við þá: „Hjartanlega hef ég þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með yður áður en [...]