Biblíulestur 19. febrúar – Opb 14.14–20
Og ég sá, og sjá: Hvítt ský og á skýinu einhvern sitja líkan mannssyni. Hann hafði gullkórónu á höfði og beitta sigð í hendi. Og annar engill kom út úr musterinu. Hann kallaði hárri röddu til þess sem á skýinu sat: „Beittu sigð þinni og skerðu upp því að kominn er uppskerutíminn, kornið er þroskað.“ Og sá sem á skýinu sat brá sigð sinni á jörðina og uppskeran var færð í hlöðu.
Annar engill gekk út úr musterinu, sem er á himni, og hann hafði líka beitta sigð.
Og enn annar engill gekk út frá altarinu og hafði vald yfir eldinum. Hann kallaði hárri röddu til þess sem hafði beittu sigðina: „Tak beittu sigðina þína og sker þrúgurnar af vínviði jarðarinnar því að vínberin á honum eru orðin þroskuð.“ Og engillinn brá sigð sinni á jörðina, skar af vínviði hennar og kastaði honum í vínþröngina miklu sem táknar reiði Guðs. Og vínþröngin var troðin fyrir utan borgina og gekk blóð út af henni svo að tók upp undir beisli hestanna, eitt þúsund og sex hundruð skeiðrúm þar frá.
Biblíulestur 2. janúar – Mrk 9.33–42
Þeir komu til Kapernaúm. Þegar þeir voru komnir inn spurði Jesús þá: „Hvað voruð þið að ræða á leiðinni?“ En þeir þögðu. Þeir höfðu verið að ræða það sín á [...]
Biblíulestur 1. janúar – Jóh 2.23–25
Meðan hann var í Jerúsalem á páskahátíðinni fóru margir að trúa á hann því þeir sáu þau tákn sem hann gerði. En Jesús gaf þeim ekki trúnað sinn því hann [...]
Biblíulestur Gamlársdagur – Lúk 13.6–9
Þá sagði Jesús þeim þessa dæmisögu: „Maður nokkur átti fíkjutré gróðursett í víngarði sínum. Hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann ekki. Hann sagði þá við víngarðsmanninn: Í [...]
Biblíulestur 30. desember – Dóm 19.1–21
Um þær mundir bar svo til meðan enn var enginn konungur í Ísrael að Levíti nokkur bjó inni við fjarlægustu Efraímsfjöll. Tók hann sér hjákonu frá Betlehem í Júda. Þessi [...]
Biblíulestur 29. desember – Dóm 18.21–31
Sneru þeir nú við förinni og héldu af stað en sendu börn og búsmala og verðmæta hluti á undan sér. Þegar þeir voru komnir langt í burt frá húsi Míka [...]
Biblíulestur 28. desember – Dóm 18.1–20
Í þá daga var enginn konungur í Ísrael og í þá daga voru niðjar Dans enn að leita sér að arfleifð til búsetu því að þeim hafði ekki enn hlotnast [...]