Biblíulestur 18. febrúar – Matt 9.14–17
Þá koma til Jesú lærisveinar Jóhannesar og segja: „Hví föstum við og farísear en þínir lærisveinar fasta ekki?“
Jesús svaraði þeim: „Hvort geta brúðkaupsgestir verið hryggir meðan brúðguminn er hjá þeim? En koma munu þeir dagar er brúðguminn verður frá þeim tekinn. Þá munu þeir fasta.
Enginn lætur bót af óþæfðum dúk á gamalt fat því þá rífur bótin út frá sér og verður af verri rifa. Ekki láta menn heldur nýtt vín á gamla belgi því þá springa belgirnir og vínið fer niður en belgirnir ónýtast. Menn láta nýtt vín á nýja belgi og varðveitist þá hvort tveggja.“
Biblíulestur 27. desember – Dóm 17.1–13
Maður hét Míka. Hann var frá Efraímsfjöllum. Hann sagði við móður sína: „Þeir ellefu hundruð siklar silfurs, sem voru teknir frá þér og þú hefur beðið bölbæna fyrir í mín [...]
Biblíulestur Annar í jólum – Matt 1.18–25
Fæðing Jesú Krists varð á þennan hátt: María, móðir hans, var föstnuð Jósef. En áður en þau komu saman reyndist hún þunguð af heilögum anda. Jósef, festarmaður hennar, sem var [...]
Biblíulestur Jóladagur – Jóh 1.1–14
Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Hann var í upphafi hjá Guði. Allt varð til fyrir hann, án hans varð ekki neitt sem [...]
Biblíulestur Aðfangadagur – Lúk 2.1–14
En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er Kýreníus var landstjóri [...]
Biblíulestur Þorláksmessa – Matt 24.42–47
Vakið því, þér vitið eigi hvaða dag Drottinn yðar kemur. Það skiljið þér að húsráðandi vekti og léti ekki brjótast inn í hús sitt ef hann vissi á hvaða stundu [...]
Biblíulestur 22. desember – Dóm 16.23–31
Nú söfnuðust höfðingjar Filistea saman til þess að færa Dagón, guði sínum, fórn mikla og gera sér glaðan dag enda sögðu þeir: „Guð okkar hefur selt óvininn Samson okkur í [...]