Biblíulestur 17. febrúar – Opb 14.6–13
Og ég sá annan engil fljúga um háhvolf himins. Hann hélt á eilífum fagnaðarboðskap til að boða þeim sem á jörðunni búa og sérhverri þjóð og kynkvísl, tungu og lýð og sagði hárri röddu: „Óttist Guð og gefið honum dýrðina. Stundin er komin er hann kveður upp dóm sinn. Tilbiðjið þann sem hefur gert himininn og jörðina og hafið og uppsprettur vatnanna.“
Annar engill kom á eftir honum og sagði: „Fallin er, fallin er Babýlon hin mikla sem byrlað hefur öllum þjóðum af lostavíni saurlífis síns.“
Á eftir þeim kom þriðji engillinn og sagði hárri röddu: „Ef einhver tilbiður dýrið og líkneski þess og lætur setja merki þess á enni sér eða hönd, þá skal hann fá að drekka óblandað vín af reiðiskálum Guðs og hann mun verða kvalinn í eldi og brennisteini í augsýn heilagra engla og í augsýn lambsins. Og reykurinn frá kvalastað þeirra stígur upp um aldir alda og þeir sem tilbiðja dýrið og líkneski þess og hver sem ber merki þess mun enga ró hafa nótt og dag.“
Hér reynir á þolgæði hinna heilögu, þeirra er hlýða Guði og trúa á Jesú.
Og ég heyrði rödd af himni sem sagði: „Rita þú: Sælir eru dánir, þeir sem í Drottni deyja upp frá þessu. Já, segir andinn, þeir skulu fá hvíld frá erfiði sínu því að verk þeirra fylgja þeim.“
Biblíulestur 21. desember – Dóm 16.4–22
Eftir þetta bar svo við að Samson felldi ástarhug til konu einnar í Sórekdal. Hún hét Dalíla. Höfðingjar Filistea komu til hennar og sögðu við hana: „Ginntu hann og komstu [...]
Biblíulestur 20. desember – Dóm 15.1–16.3
Að nokkrum tíma liðnum kom Samson um hveitiuppskerutímann að vitja konu sinnar og hafði með sér kiðling. Hann sagði við föður hennar: „Hleyptu mér inn í afhýsið til konu minnar.“ [...]
Biblíulestur 19. desember – Dóm 14.1–20
Samson fór niður til Timna og sá þar konu eina. Hún var ein af dætrum Filistea. Síðan fór hann heim aftur, sagði föður sínum og móður frá þessu og mælti: [...]
Biblíulestur Fjórði sunnudagur í aðventu – Jóh 3.22–30
Eftir þetta fóru Jesús og lærisveinar hans út í Júdeuhérað. Þar dvaldist hann með þeim og skírði. Jóhannes var líka að skíra í Aínon nálægt Salím en þar var mikið [...]
Biblíulestur 17. desember – Slm 37.12-24
Hinn óguðlegi bruggar réttlátum vélráð og gnístir tönnum gegn honum. Drottinn hlær að honum því að hann sér að dagur hans kemur. Óguðlegir bregða sverði og spenna boga sína til [...]
Biblíulestur 16. desember – Dóm 13.1–25
Ísraelsmenn gerðu enn að nýju það sem illt var í augum Drottins. Þá gaf Drottinn þá í hendur Filisteum í fjörutíu ár. Maður er nefndur Manóa. Hann var frá Sorea, [...]