Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 21. febrúar – Slm 116.1–19

Ég elska Drottin
af því að hann heyrir grátbeiðni mína.
Hann hneigði eyra sitt að mér
þegar ég ákallaði hann.
Snörur dauðans umkringdu mig,
angist heljar kom yfir mig,
ég mætti nauðum og harmi.
Þá ákallaði ég nafn Drottins:
„Drottinn, bjarga lífi mínu.“
Náðugur er Drottinn og réttlátur
og Guð vor er miskunnsamur.
Drottinn verndar sakleysingja,
ég var í nauðum og hann bjargaði mér.
Vertu aftur róleg, sála mín,
því að Drottinn gerir vel til þín.
Þú bjargaðir lífi mínu frá dauða,
auga mínu frá tárum,
fæti mínum frá hrösun.
Ég geng frammi fyrir Drottni
á landi lifenda.
Ég treysti honum, því sagði ég:
„Ég er mjög beygður.“
Ég sagði í angist minni:
„Allir menn ljúga.“
Hvað á ég að gjalda Drottni
fyrir allar velgjörðir hans við mig?
Ég lyfti bikar hjálpræðisins
og ákalla nafn Drottins.
Ég greiði Drottni heit mín
og það í augsýn alls lýðs hans.
Dýr er í augum Drottins
dauði dýrkenda hans.
Drottinn, víst er ég þjónn þinn,
ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar,
þú leystir fjötra mína.
Ég færi þér þakkarfórn,
ákalla nafn Drottins.
Ég greiði Drottni heit mín
og það í augsýn alls lýðs hans,
í forgörðum húss Drottins,
í þér, Jerúsalem,
Hallelúja.

Biblíulestur 13. janúar – 1Kon 8.14–30

Þá sneri konungur sér við og blessaði allan söfnuð Ísraels en allur söfnuður Ísraels stóð. Hann sagði: „Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels. Hann hefur efnt með hendi sinni það sem [...]

Biblíulestur 12. janúar – 1Kon 8.1–13

Þá safnaði Salómon til sín í Jerúsalem öllum öldungum Ísraels, öllum höfðingjum ættbálka og ætta Ísraels, til þess að flytja sáttmálsörk Drottins frá borg Davíðs, það er frá Síon. Allir [...]

Biblíulestur 11. janúar – 2Mós 17.1–7

Allur söfnuður Ísraelsmanna lagði nú af stað frá Síneyðimörkinni og hélt áfram í áföngum eftir fyrirmælum Drottins. Þeir slógu upp búðum í Refídím. Af því að ekkert drykkjarvatn var þar [...]

Biblíulestur 10. janúar – Ef 1.3–14

Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem í Kristi hefur blessað oss með allri andlegri blessun himinsins. Áður en grunnur heimsins var lagður útvaldi hann oss í [...]

Biblíulestur 9. janúar – Gal 3.23–4.7

3. kafliÁður en þessi leið var fær vorum við innilokuð í gæslu lögmálsins þangað til trúin, sem í vændum var, opinberaðist. Þannig hefur lögmálið orðið tyftari okkar þangað til Kristur [...]

Fara efst