Þá sneri konungur sér við og blessaði allan söfnuð Ísraels en allur söfnuður Ísraels stóð. Hann sagði: „Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels. Hann hefur efnt með hendi sinni það sem hann hét Davíð, föður mínum, með munni sínum þegar hann sagði: Frá þeim degi, er ég leiddi þjóð mína, Ísrael, út úr Egyptalandi, hef ég ekki valið borg nokkurs af ættbálkum Ísraels til þess að reisa hús þar sem nafn mitt gæti búið. Aftur á móti valdi ég Davíð til þess að ríkja yfir þjóð minni, Ísrael. Davíð, faðir minn, hafði í hyggju að reisa nafni Drottins, Guðs Ísraels, hús. En Drottinn sagði við Davíð, föður minn: Vel gerðir þú er þú ákvaðst að reisa nafni mínu hús en þú átt ekki að byggja þetta hús heldur skal sonur þinn, sem er af þínu holdi, reisa nafni mínu hús. Drottinn hefur efnt það loforð sem hann gaf. Ég er kominn í stað Davíðs, föður míns, og er sestur í hásæti Ísraels eins og Drottinn hét. Nú hef ég reist nafni Drottins, Guðs Ísraels, hús og búið örkinni þar stað. Í henni er sáttmálinn sem Drottinn gerði við feður okkar þegar hann leiddi þá út úr Egyptalandi.“

Þessu næst gekk Salómon fyrir altari Drottins andspænis öllum söfnuði Ísraels, lauk upp lófum til himins og bað: „Drottinn, Guð Ísraels, enginn guð er sem þú, hvorki á himni né á jörðu. Þú heldur sáttmálann og sýnir þeim þjónum þínum trúfesti sem breyta af heilum hug frammi fyrir augliti þínu. Þú hefur staðið við það sem þú lofaðir þjóni þínum, Davíð föður mínum. Það sem þú lofaðir með munni þínum hefur þú efnt í dag með hendi þinni. Drottinn, Guð Ísraels, efndu nú einnig fyrirheitið sem þú gafst þjóni þínum, Davíð föður mínum, þegar þú sagðir: Niðjar þínir munu ætíð sitja frammi fyrir mér í hásæti Ísraels svo framarlega sem þeir vanda framferði sitt og breyta frammi fyrir mér eins og þú hefur gert. Guð Ísraels, stattu nú við fyrirheitið sem þú gafst Davíð, þjóni þínum.
Býr Guð þá í raun og veru á jörðinni? Nei, jafnvel himinninn og himnar himnanna rúma þig ekki, hvað þá þetta hús sem ég hef byggt. Gefðu gaum að ákalli þjóns þíns og bæn hans, Drottinn Guð. Heyr ákallið og bænina sem ég, þjónn þinn, ber fram fyrir þig í dag.
Lát augu þín vaka yfir þessu húsi dag og nótt, þeim stað sem þú hefur sagt um: Þar skal nafn mitt búa. Heyr bænina er þjónn þinn biður á þessum stað. Er þjónn þinn og lýður þinn, Ísrael, biður og snýr í átt til þessa staðar, heyr ákall hans. Hlustaðu á það í himninum þar sem þú býrð. Heyr það og fyrirgef.