Biblíulestur 8. apríl – Est 5.1–14
Á þriðja degi klæddist Ester drottningarskrúða sínum og gekk inn í innri hallargarðinn andspænis konungshöllinni sjálfri. Þar sat konungur í hásæti sínu í hallarsalnum gegnt dyrum hallarinnar. Þegar konungur sá Ester drottningu standa úti fyrir gast honum vel að henni og rétti gullsprotann, sem hann hafði í hendi sér, í átt til hennar en Ester gekk til hans og snerti oddinn á sprotanum. Konungur sagði við hana: „Hvað er að, Ester drottning, hvers óskarðu? Bæðirðu mig um hálft konungsríkið yrði ég jafnvel við þeirri ósk.“
En Ester sagði: „Þóknist það konungi vil ég biðja hann að koma í dag ásamt Haman til veislu sem ég hef búið honum.“
Konungur bað menn að sækja Haman þegar í stað svo að þeir gætu þegið boð Esterar. Þeir Haman héldu til veislunnar sem Ester hafði búið þeim og eftir að þau voru sest að drykkju sagði konungur við Ester: „Bið mig hvers sem þú óskar og það skal ég veita þér. Biðjir þú mig um hálft konungsríkið skal það verða þitt.“
Ester svaraði: „Þetta er ósk mín og bón: Hafi ég fallið konunginum í geð og þóknist konunginum að verða við ósk minni og bón bið ég hann að koma á morgun ásamt Haman til veislu sem ég ætla að halda þeim. Þá skal ég fara að orðum konungs.“ Haman gekk út þaðan þennan dag ánægður og í besta skapi. En þá kom hann auga á Mordekaí í hallarhliðinu og þegar hann sá að Mordekaí hvorki stóð upp fyrir honum né sýndi honum virðingu á nokkra lund varð Haman honum afar reiður. Þó stillti hann sig og hélt áfram heim á leið. Þegar þangað kom lét hann senda eftir góðvinum sínum og Seres, konu sinni, og gortaði við þau af auðæfum sínum, fjölda sona sinna, þeim frama sem hann hafði hlotið af konungi og því hvernig konungur hafði sett hann til æðri metorða en nokkurn annan af höfðingjum sínum og embættismönnum. „Já,“ sagði Haman, „Ester drottning bauð engum til veislunnar nema mér og konungi. Og á morgun býður hún mér enn til veislu með konunginum. En ekkert af þessu er mér til gleði meðan ég sé Gyðinginn Mordekaí sitja í hallarhliðinu.“
Þá sögðu þau Seres, kona hans, og allir vinir hans við hann: „Láttu reisa fimmtíu álna háan gálga og talaðu um það við konung í fyrramálið að Mordekaí verði festur á hann. Eftir það geturðu farið glaður til veislunnar með konungi.“ Þetta þótti Haman þjóðráð og lét hann reisa gálgann.
Biblíulestur 16. september – Jer 11.18–23
Drottinn skýrði mér frá því svo að ég vissi það. Þú gerðir mér ljóst hvað þeir höfðu fyrir stafni. Sjálfur var ég eins og grunlaust lamb sem er leitt til [...]
Biblíulestur 15. september – Lúk 5.17–26
Dag nokkurn var Jesús að kenna. Þar sátu farísear og lögmálskennendur, komnir úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og frá Jerúsalem, og kraftur Drottins var með honum til að [...]
Biblíulestur 15. september – Jóh 11.32–45
María kom þangað sem Jesús var og er hún sá hann féll hún honum til fóta og sagði við hann: „Drottinn, ef þú hefðir verið hér væri bróðir minn ekki [...]
Biblíulestur 14. september – Slm 80.9–20
Þú reifst upp vínvið í Egyptalandi, stökktir burt þjóðum og gróðursettir hann, þú rýmdir til fyrir honum, hann festi rætur og fyllti landið. Fjöllin huldust í skugga hans og sedrustré [...]
Biblíulestur 14. september – Matt 23.16–33
Vei yður, blindir leiðtogar! Þér segið: Ef einhver sver við musterið þá er það ógilt en sverji menn við gullið í musterinu þá er það gildur eiður. Blindu heimskingjar, hvort [...]
Biblíulestur 13. september – 1Kon 19.12–21
Eftir jarðskjálftann kom eldur. En Drottinn var ekki í eldinum. Eftir eldinn kom þytur af þýðum blæ. Þegar Elía heyrði hann huldi hann andlit sitt með skikkju sinni, gekk út [...]