Biblíulestur 7. apríl – Est 4.4–17
Þegar þernur og geldingar Esterar komu til hennar og sögðu henni frá þessu var drottningu mjög brugðið. Hún lét senda Mordekaí föt svo að hann gæti skipt á þeim og sekknum. En hann neitaði að taka við þeim. Ester kallaði þá til sín Hatak, einn af geldingum konungs sem hann hafði sett til að þjóna henni. Sagði hún honum að fara til Mordekaí og spyrja hvað amaði að honum og hverju það sætti. Hatak gekk út til Mordekaí á torgið fyrir framan hallarhliðið og Mordekaí greindi honum frá öllu sem fyrir hann hafði komið og einnig fjárfúlgunni, sem Haman hafði lofað að leggja í sjóði konungs, yrði honum leyft að tortíma Gyðingum. Hann fékk honum einnig afrit af tilskipuninni um tortímingu Gyðinga sem gefin hafði verið út í Súsa. Bað hann að Ester yrði sýnt bréfið, henni sögð tíðindin og hún beðin að ganga fyrir konung til að grátbæna hann um miskunn og biðja þjóð sinni vægðar.
Hatak fór og flutti Ester orð Mordekaí og bað Ester hann þá að flytja Mordekaí þetta svar: „Allir þjónar konungs og þegnar í löndum hans vita að ein lög gilda um hvern mann, karl eða konu, sem gengur fyrir konung inn í innri garð hallarinnar án þess að konungur hafi boðað hann til sín. Hans bíður dauðarefsing nema því aðeins að konungur rétti fram gullsprota sinn til marks um að hann megi halda lífi. Nú eru þrjátíu dagar liðnir síðan ég var síðast kölluð inn til konungs.“
Þegar Mordekaí voru flutt orð Esterar bað hann um að þessu svari yrði skilað til hennar: „Þú skalt ekki ætla þér þá dul að þú verðir hólpin, ein allra Gyðinga, þótt þú dveljist í konungshöll. Fari svo að þú þegir nú mun Gyðingum eigi að síður berast hjálp og frelsun úr öðrum stað. En það yrðu endalok þín og ættar föður þíns. Hver veit nema þú hafir orðið drottning nú vegna þessara atburða?“
Þá sendi Ester þessi svör til Mordekaí: „Farðu og kallaðu saman alla Gyðinga sem nú er að finna í Súsa. Haldið föstu mín vegna og etið hvorki né drekkið í þrjá sólarhringa, hvorki á nóttu né degi. Eins munum við fasta, ég og þernur mínar. Síðan geng ég fyrir konung enda þótt það sé andstætt lögunum. Ef ég dey þá dey ég.“
Mordekaí gekk þá burt og fór að öllu eins og Ester hafði lagt fyrir.
Biblíulestur 13. september – Matt 23.1–15
Þá talaði Jesús til mannfjöldans og lærisveina sinna: „Á stóli Móse sitja fræðimenn og farísear. Því skuluð þér gera og halda allt sem þeir segja yður en eftir breytni þeirra [...]
Biblíulestur 12. september – Matt 9.9–17
Þá er hann gekk þaðan sá hann mann sitja hjá tollbúðinni, Matteus að nafni, og hann segir við hann: „Fylg þú mér!“ Og hann stóð upp og fylgdi honum. Nú [...]
Biblíulestur 12. september – 1Kon 19.1–11
Akab sagði Jesebel frá öllu sem Elía hafði gert og að hann hefði drepið alla spámennina með sverði. Jesebel sendi þá mann til Elía með þessi skilaboð: „Guðirnir geri mér [...]
Biblíulestur 11. september – Jak 5.1–11
Hlustið á, þið auðmenn, grátið og kveinið yfir þeim bágindum sem yfir ykkur munu koma. Auður ykkar er orðinn fúinn og klæði ykkar eru orðin mölétin, gull ykkar og silfur [...]
Biblíulestur 11. september – Jes 28.16–23
Þess vegna segir Drottinn Guð: Sjá, ég legg undirstöðustein á Síon, traustan stein, valinn hornstein. Sá sem trúir flýr ekki. Ég geri réttinn að mælivað og réttlætið að mælilóði. Þá [...]
Biblíulestur 10. september – Jóh 5.1–15
Þessu næst var ein af hátíðum Gyðinga og Jesús fór upp til Jerúsalem. Við Sauðahliðið í Jerúsalem er laug sem kallast á hebresku Betesda. Þar eru fimm súlnagöng. Í þeim [...]