Biblíulestur 6. apríl – Jóh 20.11–18
En María stóð úti fyrir gröfinni og grét. Grátandi laut hún inn í gröfina og sá tvo engla í hvítum klæðum sitja þar sem líkami Jesú hafði legið, annan til höfða og hinn til fóta. Þeir segja við hana: „Kona, hví grætur þú?“
Hún svaraði: „Þeir hafa tekið brott Drottin minn og ég veit ekki hvar þeir hafa lagt hann.“ Að svo mæltu snýr hún sér við og sér Jesú standa þar. En hún vissi ekki að það var Jesús.
Jesús segir við hana: „Kona, hví grætur þú? Að hverjum leitar þú?“
Hún hélt að hann væri grasgarðsvörðurinn og sagði við hann: „Herra, ef þú hefur borið hann burt þá segðu mér hvar þú hefur lagt hann svo að ég geti sótt hann.“
Jesús segir við hana: „María!“
Hún snýr sér að honum og segir á hebresku: „Rabbúní!“ (Rabbúní þýðir meistari.)
Jesús segir við hana: „Snertu mig ekki. Ég er ekki enn stiginn upp til föður míns. En farðu til bræðra minna og seg þeim: Ég stíg upp til föður míns og föður ykkar, til Guðs míns og Guðs ykkar.“
María Magdalena kemur og boðar lærisveinunum: „Ég hef séð Drottin.“ Og hún flutti þeim það sem hann hafði sagt henni.
Biblíulestur 10. september – Jóh 5.1–15
Þessu næst var ein af hátíðum Gyðinga og Jesús fór upp til Jerúsalem. Við Sauðahliðið í Jerúsalem er laug sem kallast á hebresku Betesda. Þar eru fimm súlnagöng. Í þeim [...]
Biblíulestur 9.9.2023 – Slm 59.1–8
Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð þá er Sál sendi menn og þeir héldu vörð um húsið til þess að drepa hann. Frelsa mig frá óvinum mínum, Guð [...]
Biblíulestur 9. september – Jer 5.20–31
Kunngjörið meðal Jakobs niðja, boðið í Júda og segið: Hlýddu á, heimska og skilningslausa þjóð, sem hefur augu en sérð ekki, eyru en heyrir ekki: Óttist þér mig eigi? segir [...]
Biblíulestur 8. september – Lúk 18.28–30
Þá sagði Pétur: „Við yfirgáfum allt sem við áttum og fylgdum þér.“ Jesús sagði við þá: „Sannlega segi ég yður að enginn hefur yfirgefið heimili, konu, bræður, foreldra eða börn [...]
Biblíulestur 8. september – Jes 28.1–15
Vei hinum drembilega blómsveig drykkjurútanna í Efraím, hinu bliknaða blómi, hinni dýrlegu prýði hans á hæðarkollinum í hinum frjósama dal þar sem vínið lagði þá að velli. Hetja Drottins, sterk [...]
Biblíulestur 7. september – Slm 80.1–8
Hirðir Ísraels, hlýð á, þú, sem leiðir Jósef eins og hjörð. Þú, sem ríkir yfir kerúbunum, birst þú í geisladýrð fyrir Efraím, Benjamín og Manasse. Vek upp kraft þinn og [...]