Biblíulestur – 8. maí – 1Kor 13.1–13
Þótt ég talaði tungum manna og engla
en hefði ekki kærleika
væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
Og þótt ég hefði spádómsgáfu
og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking
og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú að færa mætti fjöll úr stað
en hefði ekki kærleika,
væri ég ekki neitt.
Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum
og þótt ég framseldi líkama minn til þess að verða brenndur
en hefði ekki kærleika,
væri ég engu bættari.
Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin,
hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni en samgleðst sannleikanum.
Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok,
og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok.
Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum.
En þegar hið fullkomna kemur líður það undir lok sem er í molum.
Þegar ég var barn talaði ég eins og barn,
hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn.
En þegar ég var orðinn fulltíða lagði ég niður barnaskapinn.
Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu,
en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
Nú er þekking mín í molum
en þá mun ég gjörþekkja eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.
En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt,
en þeirra er kærleikurinn mestur.
Biblíulestur 10. febrúar – Slm 86.1-11
1 Bæn Davíðs. Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig því að ég er hjálparvana og snauður. 2Vernda líf mitt því að ég er þér trúr. Þú ert Guð minn, [...]
Biblíulestur 9. febrúar – 2Sam 14.1-20
Absalon snýr til Jerúsalem 1 Þegar Jóab Serújusyni varð ljóst að Absalon varð konungi aftur hjartfólginn 2sendi hann mann til Tekóa til að sækja þangað vitra konu og sagði við [...]
Biblíulestur 8. febrúar – 2Sam 13.23-39
Hefnd Absalons 23 Tveim árum síðar lét Absalon rýja fé sitt í Baal Hasór við Efraím og bauð þá öllum sonum konungs til veislu. 24 Hann gekk því fyrir konung [...]
Biblíulestur 7. febrúar – 2Sam 13.1-22
Amnon og Tamar 1 Nú segir frá því að Absalon, sonur Davíðs, átti fallega systur sem hét Tamar. Amnon, sonur Davíðs, varð ástfanginn af henni. 2 Amnon varð hugsjúkur af [...]
Biblíulestur 6. febrúar – 2Sam 12.15-31
15 Síðan fór Natan heim til sín. Sonur Davíðs og Batsebu deyr Drottinn lét drenginn, sem kona Hetítans Úría ól Davíð, veikjast. 16 Davíð sneri sér þá til Drottins vegna [...]
Biblíulestur 5. febrúar – 2Sam 12.1-14
Dómur Natans og iðrun Davíðs 1 Drottinn sendi nú Natan til Davíðs. Þegar hann kom til hans sagði hann: „Í borg einni bjuggu tveir menn. Annar var ríkur en hinn [...]