Biblíulestur – 7. maí – 1Kor 12.14–31
Því að líkaminn er ekki einn limur heldur margir. Ef fóturinn segði: „Fyrst ég er ekki hönd heyri ég ekki líkamanum til,“ þá er hann ekki fyrir það líkamanum óháður. Og ef eyrað segði: „Fyrst ég er ekki auga heyri ég ekki líkamanum til,“ þá er það ekki þar fyrir líkamanum óháð. Ef allur líkaminn væri auga, hvar væri þá heyrnin? Ef hann væri allur heyrn, hvar væri þá ilmanin? En nú hefur Guð sett hvern einstakan lim á líkamann eins og honum þóknaðist. Ef allir limirnir væru einn limur, hvar væri þá líkaminn? En nú eru limirnir margir en líkaminn einn.
Augað getur ekki sagt við höndina: „Ég þarfnast þín ekki!“ né heldur höfuðið við fæturna: „Ég þarfnast ykkar ekki!“ Nei, miklu fremur eru þeir limir á líkamanum nauðsynlegir sem virðast vera í veikbyggðara lagi. Og þeim sem okkur virðast vera í óvirðulegra lagi á líkamanum, þeim veitum við því meiri sæmd, og þeim sem við blygðumst okkar fyrir sýnum við því meiri blygðunarsemi. Þess þarfnast hinir ásjálegu limir okkar ekki. En Guð setti líkamann svo saman að hann gaf þeim sem síðri var því meiri sæmd til þess að ekki yrði ágreiningur í líkamanum heldur skyldu limirnir bera sameiginlega umhyggju hver fyrir öðrum. Og hvort heldur einn limur þjáist, þá þjást allir limirnir með honum eða einn limur er í hávegum hafður samgleðjast allir limirnir honum.
Þið eruð líkami Krists og limir hans hvert um sig. Guð hefur gefið öllum sitt hlutverk í kirkjunni: Fyrst hefur hann sett postula, í öðru lagi spámenn, í þriðja lagi kennara, sumum hefur hann veitt gáfu að gera kraftaverk, lækna, vinna líknarstörf, stjórna og tala tungum. Geta allir verið postular? Eru allir spámenn? Eru allir kennarar? Eru allir kraftaverkamenn? Hafa allir hlotið lækningagáfu? Tala allir tungum? Útlista allir tungutal? Nei! En sækist eftir náðargáfunum, þeim hinum meiri. Og nú bendi ég ykkur á enn þá miklu ágætari leið.
Biblíulestur 4. febrúar – Lúk 8.4-15 – BIBLÍUDAGURINN
Sæði sáð 4 Nú var mikill fjöldi saman kominn og menn komu til Jesú úr hverri borg af annarri. Þá sagði hann þessa dæmisögu: 5 „Sáðmaður gekk út að sá [...]
Biblíulestur 3. febrúar – Slm 85.1-14
Til söngstjórans. Kóraítasálmur. 2Drottinn, þú hefur haft þóknun á landi þínu, snúið við hag Jakobs. 3Þú hefur fyrirgefið misgjörð lýðs þíns, hulið allar syndir hans. (Sela) 4Þú hefur sefað reiði [...]
Biblíulestur 2. febrúar – 2Sam 11.1-27
Davíð og Batseba 1 Um áramót, þegar konunga er siður að fara í hernað, sendi Davíð menn sína og allan Ísrael í leiðangur undir stjórn Jóabs. Þeir eyddu land Ammóníta [...]
Biblíulestur 1. febrúar – 2Sam 10.1-19
Davíð sigrar Ammóníta og Aramea 1 Nokkru síðar bar svo við að konungur Ammóníta dó og Hanún, sonur hans, varð konungur eftir hann. 2 Þá sagði Davíð: „Ég ætla að [...]
Biblíulestur 31. janúar – 2Sam 9.1-13
Ríkiserfðir eftir Davíð Davíð og Mefíbóset 1 Einhverju sinni spurði Davíð: „Er nokkur maður af ætt Sáls enn á lífi? Ef svo er vil ég sýna þeim manni vinsemd vegna [...]
Biblíulestur 30. janúar – 2Sam 8.1-18
Sigrar Davíðs 1 Eftir þetta vann Davíð sigur á Filisteum. Hann braut þá undir sig og náði stjórnartaumum höfuðborgarinnar úr hendi Filistea. 2 Einnig sigraði hann Móabíta og mældi þá [...]