Biblíulestur – 6. maí – 1Kor 12.1–13
En svo ég minnist á gáfur andans, systkin, þá vil ég ekki að þið séuð fáfróð um þær. Þið vitið að þegar þið voruð heiðingjar létuð þið leiða ykkur til mállausra skurðgoðanna rétt eins og verkast vildi. Þess vegna læt ég ykkur vita að enginn, sem talar af Guðs anda, segir: „Bölvaður sé Jesús!“ og enginn getur sagt: „Jesús er Drottinn!“ nema af heilögum anda.
Mismunur er á náðargjöfum en andinn er hinn sami, mismunur er á þjónustustörfum en Drottinn hinn sami. Mismunur er á framkvæmdum en Guð hinn sami sem öllu kemur til leiðar í öllum. Þannig birtist andinn sérhverjum manni til þess að hann geri öðrum gagn. Einum gefur andinn gáfu að mæla af speki, öðrum gefur sami andi kraft að mæla af þekkingu. Sami andi veitir einum trú, öðrum lækningagáfu og öðrum kraft til að framkvæma undur. Einn fær spádómsgáfu, annar hæfileika að sannreyna anda, einn að tala tungum og annar að útleggja tungutal. Öllu þessu kemur eini og sami andinn til leiðar og hann útbýtir hverjum einum eftir vild sinni.
Því að eins og líkaminn er einn og hefur marga limi en allir limir líkamans, þótt margir séu, eru einn líkami, þannig er og Kristur. Í einum anda vorum við öll skírð til að vera einn líkami, hvort sem við erum Gyðingar eða Grikkir, þrælar eða frjálsir, og öll fengum við einn anda að drekka.
Biblíulestur 29. janúar – 2Sam 7.18-29
Bæn Davíðs 18 Þá gekk Davíð konungur inn, settist frammi fyrir augliti Drottins og sagði: „Hver er ég, Drottinn Guð, og hvað er ætt mín úr því að þú hefur [...]
Biblíulestur 28. janúar – Matt 20.1-16
Í víngarði 1 Jesús sagði þessa dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og húsbónda einn sem gekk út árla morguns að ráða verkamenn í víngarð sinn. 2 Hann samdi við verkamennina [...]
Biblíulestur 27. janúar – Okv 16.1-15
1Fyrirætlanir hjartans eru á mannsins valdi en svar tungunnar kemur frá Drottni. 2Maðurinn telur alla vegu sína vammlausa en Drottinn reynir ásetning hans. 3Fel Drottni verk þín og þá bera [...]
Biblíulestur 26. janúar – 2Sam 7.1-17
Fyrirheit um ævarandi konungdóm 1 Þegar konungur var sestur að í húsi sínu og Drottinn hafði veitt honum frið við alla óvini umhverfis 2sagði hann við Natan spámann: „Þú sérð [...]
Biblíulestur 25. janúar – 2Sam 6.1-23
Sáttmálsörkin flutt til Jerúsalem 1 Enn einu sinni safnaði Davíð saman öllum vopnfærum mönnum í Ísrael, þrjátíu þúsund manns. 2Hann hélt af stað ásamt öllum her sínum og hélt til [...]
Biblíulestur 24. janúar – 2Sam 5.17-25
Davíð sigrar Filistea 17 Þegar Filistear fréttu að Davíð hafði verið smurður til konungs yfir Ísrael héldu þeir allir norður á bóginn til þess að taka Davíð til fanga. Þegar [...]