Biblíulestur – 9. maí – 1Kor 14.1–21
Keppið eftir kærleikanum. Sækist eftir gáfum andans en einkum eftir spámannlegri gáfu. Því að sá sem talar tungum talar ekki við menn heldur við Guð. Enginn skilur hann, í anda talar hann leyndardóma. En sá sem flytur orð Guðs talar til manna, þeim til uppbyggingar, hvatningar og huggunar. Sá sem talar tungum byggir aðeins upp sjálfan sig en sá sem flytur orð Guðs byggir upp söfnuðinn. Ég vildi að þið töluðuð öll tungum en þó enn framar að þið hefðuð spámannlega gáfu. Það er meira vert en að tala tungum nema það sé útlagt, svo að söfnuðurinn hljóti uppbyggingu.
Hvað mundi ég gagna ykkur, systkin, ef ég nú kæmi til ykkar og talaði tungum en flytti ykkur ekki opinberun eða þekkingu eða spádóm eða kenningu? Ef dauðir hlutir, sem gefa hljóð frá sér, hvort heldur er pípa eða harpa, gefa ekki mismunandi hljóð frá sér, hvernig geta menn þá vitað hvað leikið er á pípuna eða hörpuna? Gefi lúðurinn ógreinilegt hljóð, hver býr sig þá til bardaga? Svo er og um ykkur: Ef þið notið ekki tunguna til að mæla fram skilmerkileg orð, hvernig verður það þá skilið sem þið talið? Þið talið þá út í bláinn. Þó að mörg tungumál séu til í heiminum er ekkert þeirra málleysa. Ef ég nú skil ekki merkingu málsins verð ég sem útlendingur fyrir þeim sem talar og hann útlendingur fyrir mér.
Eins er um ykkur. Fyrst þið sækist eftir gáfum andans kappkostið þá að eiga sem mest af þeim til þess að geta eflt söfnuðinn. Sá sem talar tungum biðji því um að geta útskýrt það sem hann segir. Því að biðjist ég fyrir með tungum biður andi minn að vísu en skilningur minn er ávaxtalaus. Hvernig er því þá farið? Ég vil biðja með anda en ég vil einnig biðja með skilningi. Ég vil lofsyngja með anda en ég vil einnig lofsyngja með skilningi. Ef þú lofar Guð með anda hvernig á þá venjulegur maður sem er viðstaddur að geta sagt amen við þakkargjörð þinni þar sem hann skilur ekki hvað þú ert að segja? Að vísu getur þakkargjörð þín verið fögur en hún gagnast ekki hinum.
Ég þakka Guði að ég tala tungum öllum ykkur fremur, en á safnaðarsamkomu vil ég heldur tala fimm skiljanleg orð, sem geta frætt aðra, en tíu þúsund orð með tungum sem enginn skilur. Systkin, hugsið ekki eins og börn, verið hrekklaus sem börn en hafið dómgreind sem fullorðnir. Í lögmálinu er ritað:
Með annarlegu tungutaki
og annarlegum vörum
mun ég tala til þessa fólks
og samt mun það ekki hlýða mér,
segir Drottinn.
Biblíulestur 16. febrúar – 2Tím 2.20-3.9
2. kafli 20 Á stóru heimili eru ekki einungis gullker og silfurker heldur og tréker og leirker. Sum eru til viðhafnar, önnur til hversdagsnota. 21 Sá sem fær sig hreinan [...]
Biblíulestur 15. febrúar – 2Tím 2.1-19
Góður hermaður Krists Jesú 1 Þú barnið mitt, Tímóteus, ver styrkur í náðinni sem veitist í Kristi Jesú. 2 Það sem þú heyrðir mig tala í margra votta viðurvist skalt [...]
Biblíulestur 14. febrúar – Matt 6.16-21
Þegar þú fastar 16 Þegar þér fastið þá verið ekki döpur í bragði eins og hræsnarar. Þeir afmynda andlit sín svo að engum dyljist að þeir fasta. Sannlega segi ég [...]
Biblíulestur 13. febrúar – 2Tím 1.1-18
Þakkir og hvatningar 1 Páll, postuli Krists Jesú, að vilja Guðs sendur til að boða fyrirheitið um lífið í Kristi Jesú, heilsar 2 Tímóteusi, elskuðu barni sínu. Náð, miskunn og [...]
Biblíulestur 12. febrúar – 2Sam 14.21-33
21 Konungur sagði nú við Jóab: „Ég hef gert upp hug minn í þessu máli. Farðu og sæktu unglinginn Absalon.“ 22 Jóab varpaði sér fram á ásjónu sína, sýndi konungi [...]
Biblíulestur 11. febrúar – Matt 3.13-17
Jesús skírður 13 Þá kom Jesús frá Galíleu að Jórdan til Jóhannesar að taka skírn hjá honum. 14 Jóhannes vildi varna honum þess og sagði: „Mér er þörf að skírast [...]