Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 10. maí – Slm 100.1–5

Þakkarfórnarsálmur.
Öll veröldin fagni fyrir Drottni.
Þjónið Drottni með gleði,
komið fyrir auglit hans með fagnaðarsöng.
Játið að Drottinn er Guð,
hann hefur skapað oss og hans erum vér,
lýður hans og gæsluhjörð.
Gangið inn um hlið hans með þakkargjörð,
í forgarða hans með lofsöng.
Lofið hann, tignið nafn hans,
því að Drottinn er góður,
miskunn hans varir að eilífu
og trúfesti hans frá kyni til kyns.

Biblíulestur 22. febrúar – Esk 1.22-2.7

1. kafli 22 Yfir höfðum veranna var eitthvað sem líktist hellu og ljómaði eins og ógnvekjandi kristall sem þandist út yfir höfðum þeirra. 23 Undir hellunni voru vængir þeirra þandir [...]

Biblíulestur 21. febrúar – Esk 1.1-21

Köllun Esekíels 1 Á fimmta degi fjórða mánaðar á þrítugasta árinu, þegar ég dvaldist á meðal útlaganna við Kebarfljót, opnaðist himinninn og ég sá guðdómlegar sýnir. 2 Á fimmta degi [...]

Biblíulestur 19. febrúar – 2Tím 3.10-4.5

3. kafli Staðfesta 10 En þú hefur fylgt mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði 11 í ofsóknum og þjáningum, slíkum sem ég varð fyrir í Antíokkíu, Íkóníum [...]

Biblíulestur 18. febrúar – Matt 4.1-11

Jesú freistað 1 Þá leiddi andinn Jesú út í óbyggðina til þess að djöfullinn gæti freistað hans. 2Þar fastaði Jesús fjörutíu daga og fjörutíu nætur og var þá orðinn hungraður. [...]

Fara efst