Biblíulestur – 11. maí – Jóh 16.16–23
Innan skamms sjáið þér mig ekki lengur og aftur innan skamms munuð þér sjá mig.“
Þá sögðu nokkrir lærisveina hans sín á milli: „Hvað er hann að segja við okkur: Innan skamms sjáið þér mig ekki og aftur innan skamms munuð þér sjá mig, og: Ég fer til föðurins?“ Lærisveinarnir spurðu: „Hvað merkir þetta: Innan skamms? Við vitum ekki hvað hann er að fara.“
Jesús vissi að þeir vildu spyrja hann og sagði við þá: „Eruð þér að spyrjast á um það að ég sagði: Innan skamms sjáið þér mig ekki og aftur innan skamms munuð þér sjá mig? Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð gráta og kveina en heimurinn mun fagna. Þér munuð hryggjast en hryggð yðar mun snúast í fögnuð. Þegar konan fæðir er hún í nauð því stund hennar er komin. Þegar hún hefur alið barnið minnist hún ekki framar þrauta sinna af fögnuði yfir því að maður er í heiminn borinn. Eins eruð þér nú hryggir en ég mun sjá yður aftur og hjarta yðar mun fagna og enginn tekur fögnuð yðar frá yður. Á þeim degi munuð þér ekki spyrja mig neins. Sannlega, sannlega segi ég yður: Hvað sem þér biðjið föðurinn um í mínu nafni mun hann veita yður.
Biblíulestur 28. febrúar – Esk 5.1-17
Táknrænn hárskurður 1 Mannssonur, taktu þér hárbeitt sverð, notaðu það eins og rakhníf og rakaðu af þér bæði hár og skegg. Taktu síðan vog og vigtaðu hárið. 2 Þriðjung skaltu [...]
Biblíulestur 27. febrúar – Esk 4.1-17
Tákn um umsátur um Jerúsalem 1 Mannssonur, taktu tígulstein, settu hann fyrir framan þig og teiknaðu á hann borg, Jerúsalemborg. 2 Gerðu umsátur um hana, reistu víggirðingar gegn henni og [...]
Biblíulestur 26. febrúar – Esk 3.16-27
Vörður Ísraels 16 Að sjö dögum liðnum kom orð Drottins til mín: 17 „Mannssonur, ég hef gert þig að verði Ísraelsmanna. Þegar þú heyrir orð af munni mínum átt þú [...]
Biblíulestur 25. febrúar – Matt 15.21-28
Kanversk kona 21 Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar. 22 Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, Drottinn, sonur Davíðs! Dóttir mín [...]
Biblíulestur 24. febrúar – Okv 16.16-33
16Hve miklu betra er að afla sér visku en gulls og ágætara að afla sér skynsemi en silfurs? 17Háttur hreinskilinna er að forðast illt, líf sitt varðveitir sá sem gætir [...]
Biblíulestur 23. febrúar – Esk 2.8-3.15
2. kafli 8 En þú, mannssonur, hlýddu á það sem ég segi við þig. Vertu ekki þrjóskur eins og þetta þverúðuga fólk. Opnaðu munn þinn og et það sem ég [...]