Biblíulestur – 12. maí – 1Kor 14.22–40
Þannig er tungutalið tákn, ekki trúuðum heldur vantrúuðum. En spámannleg gáfa er ekki tákn vantrúuðum heldur trúuðum. Ef nú allur söfnuðurinn kæmi saman og allir töluðu tungum og inn kæmu menn utan safnaðar eða vantrúaðir, mundu þeir þá ekki segja: „Þið eruð vitstola“? En ef allir töluðu af spámannlegri andagift og inn kæmi einhver vantrúaður maður utan safnaðar, þá mundu allir sannfæra hann og láta hann standa fyrir máli sínu. Leyndustu hugsanir hans verða opinberar og hann fellur fram á ásjónu sína, tilbiður Guð og vottar: Guð er sannarlega hjá ykkur.
Hvernig er það þá, kæri söfnuður? Þegar þið komið saman þá hefur hver sitt fram að færa: sálm, kenningu, opinberun, tungutal, útlistun. Allt skal miða til uppbyggingar. Séu einhverjir, sem tala tungum, mega þeir vera tveir eða í mesta lagi þrír, hver á eftir öðrum og einn útlisti. En ef ekki er neinn til að útlista, þá þegi sá á safnaðarsamkomunni sem talar tungum en tali við sjálfan sig og við Guð. En spámenn tali tveir eða þrír og hinir skulu dæma um það sem sagt er. Fái einhver annar sem þar situr opinberun, þá þagni hinn fyrri. Því að allir getið þið flutt boðskap Guðs, hver á eftir öðrum, til þess að allir hljóti fræðslu og uppörvun. Andar spámanna eru spámönnum undirgefnir því að Guð er Guð friðar, ekki truflunar.
Eins og siður er í öllum söfnuðum hinna heilögu skulu konur þegja á safnaðarsamkomum því að þeim er ekki leyft að tala heldur skulu þær hlýða eins og líka lögmálið býður. En ef þær vilja fræðast um eitthvað, þá skulu þær spyrja eiginmenn sína heima. Konum sæmir ekki að tala á safnaðarsamkomu. Eða er Guðs orð frá ykkur komið? Eða er það komið til ykkar einna?
Ef nokkur þykist vera spámaður eða gæddur gáfum andans, hann skynji að það sem ég skrifa ykkur er boðorð Drottins. Vilji einhver ekki við það kannast verður ekki við hann kannast. Sækist þess vegna, systkin, eftir spámannlegri gáfu og bannið engum að tala tungum. En allt fari sómasamlega fram og með reglu.
Biblíulestur 6. mars – Esk 8.1-18
Andinn flytur spámanninn til Jerúsalem 1 Á sjötta árinu, á fimmta degi sjötta mánaðar, þegar ég sat í húsi mínu og öldungar Júda sátu frammi fyrir mér, féll hönd Drottins [...]
Biblíulestur 5. mars – Esk 7.14-27
14Hornið er þeytt, allir herbúnir en enginn heldur til orrustu því að reiði mín kemur yfir allan landslýð. 15Sverð er úti fyrir, inni drepsótt og hungur. Sá sem er úti [...]
Biblíulestur 4. mars – Lúk 11.14-28
Guðs ríki komið 14 Jesús var að reka út illan anda og var sá mállaus. Þegar illi andinn var farinn út tók málleysinginn að mæla og undraðist mannfjöldinn. 15 En [...]
Biblíulestur 3. mars – Slm 87.1-7
1 Kóraítasálmur. Ljóð. Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum. 2Hann elskar hlið Síonar meira en alla bústaði Jakobs, 3dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs. (Sela) 4Fólk frá [...]
Biblíulestur 2. mars – Esk 7.1-13
Endirinn kemur 1 Orð Drottins kom til mín: 2Mannssonur, svo segir Drottinn Guð við land Ísraels: Endir er kominn, endirinn fyrir fjögur horn heimsins. 3Nú eru endalok þín komin, ég [...]
Biblíulestur 1. mars – Esk 6.1-14
Gegn blótstöðum á fjöllum 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, snúðu andlitinu gegn fjöllum Ísraels, flyttu boðskap gegn þeim og segðu: 3 Fjöll Ísraels, heyrið orð Drottins Guðs. [...]