Biblíulestur – 26. maí – Jóh 12.1–19
Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum. Þar var honum búinn kvöldverður og Marta gekk um beina en Lasarus var einn þeirra sem að borði sátu með honum. Þá tók María pund af ómenguðum, dýrum nardussmyrslum og smurði fætur Jesú og þerraði með hári sínu fætur hans. En húsið fylltist ilmi smyrslanna. Segir þá Júdas Ískaríot, einn lærisveina hans, sá er mundi svíkja hann: „Hví voru þessi smyrsl ekki seld fyrir þrjú hundruð denara og gefin fátækum?“ Ekki sagði hann þetta af því að hann léti sér annt um fátæka heldur af því að hann var þjófur. Hann hafði pyngjuna og tók af því sem í hana var látið. Þá sagði Jesús: „Lát hana í friði. Hún hefur geymt þetta til greftrunardags míns. Fátæka hafið þið ætíð hjá ykkur en mig hafið þið ekki ávallt.“
Nú frétti allur fjöldi Gyðinga af því að Jesús væri í Betaníu og þeir komu þangað, ekki aðeins hans vegna heldur og til að sjá Lasarus sem hann hafði vakið frá dauðum. Þá ákváðu æðstu prestarnir að taka einnig Lasarus af lífi því vegna hans sneru margir Gyðingar baki við þeim og fóru að trúa á Jesú.
Degi síðar frétti hinn mikli mannfjöldi, sem kominn var til hátíðarinnar, að Jesús væri að koma til Jerúsalem. Fólk tók þá pálmagreinar, fór út á móti honum og hrópaði:
„Hósanna!
Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins,
konungur Ísraels!“
Jesús fann ungan asna og settist á bak honum, eins og skrifað er:
Óttast ekki, dóttir Síon.
Konungur þinn kemur
og ríður ösnufola.
Lærisveinar hans skildu þetta ekki í fyrstu en þegar Jesús var dýrlegur orðinn minntust þeir þess að þetta var ritað um hann og að þeir höfðu gert þetta fyrir hann.
Nú vitnaði fólkið, sem með honum var, þegar hann kallaði Lasarus út úr gröfinni og vakti hann frá dauðum. Vegna þess fór einnig mannfjöldinn á móti honum því menn höfðu heyrt að hann hefði gert þetta tákn. Því sögðu farísear sín á milli: „Þið sjáið að þið ráðið ekki við neitt. Allur heimurinn eltir hann.“
Biblíulestur 3. júní – Matt 16.19-31
Ríkur og snauður 19 Jesús sagði þeim þessa dæmisögu: „Einu sinni var maður nokkur ríkur er klæddist purpura og dýru líni og lifði hvern dag í dýrlegum fagnaði. 20 En [...]
Biblíulestur 2. júní – Slm 94.1-15
1Drottinn, Guð hefndarinnar, [ Guð hefndarinnar, birst þú í ljóma. 2Rís þú upp, dómari jarðar, endurgjald drembilátum breytni þeirra. 3Hve lengi, Drottinn, mega guðlausir, hve lengi mega guðlausir fagna? 4Þeir [...]
Biblíulestur 1. júní – 2Sam 24.18-25
18 Þennan sama dag gekk Gað fyrir Davíð og sagði: „Farðu upp eftir og reistu Drottni altari á þreskivelli Jebúsítans Aravna.“ 19 Davíð gekk þá upp eftir eins og Gað [...]
Biblíulestur 31. maí – 2Sam 24.1-17
Manntalið og plágan 1 Enn einu sinni blossaði reiði Drottins upp gegn Ísraelsmönnum. Hann espaði Davíð gegn þeim og skipaði: „Farðu og teldu Ísraelsmenn og Júdamenn.“ 2 Konungur sagði við [...]
Biblíulestur 30. maí – 2Sam 23.13-39
13 Einu sinni fóru þrír af hinum þrjátíu í byrjun uppskerunnar niður eftir til Davíðs í Adúllamhelli. Flokkur Filistea var þá í herbúðum í Refaímdal, 14 Davíð í fjallavirkinu en [...]
Biblíulestur 29. maí – 2Sam 23.1-12
Síðustu orð Davíðs 1 Síðustu orð Davíðs hljóða svo: Svo segir Davíð, sonur Ísaí, þannig mælir maðurinn sem hátt var settur, hinn smurði Guðs Jakobs sem lofaður var í ljóðum [...]