Biblíulestur – 25. maí – Jóh 16.23b–30
Sannlega, sannlega segi ég yður: Hvað sem þér biðjið föðurinn um í mínu nafni mun hann veita yður. Hingað til hafið þér einskis beðið í mínu nafni. Biðjið og þér munuð öðlast svo að fögnuður yðar verði fullkominn.
Þetta hef ég sagt yður í líkingum. Sú stund kemur að ég tala ekki framar við yður í líkingum heldur mun ég berum orðum segja yður frá föðurnum. Á þeim degi munuð þér biðja í mínu nafni. Ég segi yður ekki að ég muni biðja föðurinn fyrir yður því sjálfur elskar faðirinn yður þar eð þér hafið elskað mig og trúað að ég sé frá Guði kominn. Ég er kominn í heiminn frá föðurnum. Ég yfirgef heiminn aftur og fer til föðurins.“
Lærisveinar hans sögðu: „Nú talar þú berum orðum og mælir enga líking. Nú vitum við að þú veist allt og þarft eigi að nokkur spyrji þig. Þess vegna trúum við að þú sért frá Guði kominn.“
Biblíulestur 28. maí – 2Sam 22.26-51
26 Þú ert trúum trúr, ráðvöndum ráðvandur, 27 einlægur einlægum, en andsnúinn svikurum. 28 Þú frelsar undirokaða en hefur augu á hinum hrokafullu og auðmýkir þá. 29 Já, þú ert [...]
Biblíulestur 27. maí – Jóh 3.1-15 – Þrenningarhátíð
1 Maður hét Nikódemus, af flokki farísea, og átti sæti í öldungaráði Gyðinga. 2 Hann kom til Jesú um nótt og sagði við hann: „Rabbí, við vitum að þú ert [...]
Biblíulestur 26. maí – Okv 17.19-28
19Sá sem ann þrætum sækir í yfirsjón, sá sem gerir þröskuld sinn háan hnýtur um hann. 20Hinn meinfýsni öðlast enga gæfu og sá sem fer með lygar ratar í vanda. [...]
Biblíulestur 25. maí -2Sam 22.1-25
Þakkarsálmur Davíðs 1 Davíð flutti Drottni þetta ljóð[ þegar hann hafði bjargað Davíð úr greipum allra fjandmanna hans og úr greipum Sáls. Hann sagði: 2Drottinn, bjarg mitt og vígi, frelsari [...]
Biblíulestur 24. maí – 2Sam 21.10-22
10 Rispa Ajasdóttir tók þá sorgarklæði sín og breiddi þau á klöppina handa sér. Hún var hjá hinum látnu frá því að uppskeran hófst uns regnið tók að hellast yfir [...]
Biblíulestur 23. maí – 2Sam 20.23-21.9
20. kafli Embættismenn Davíðs 23 Jóab var hershöfðingi yfir öllum Ísraelsher og Benaja Jójadason var fyrir Kretum og Pletum. 24Adóníram var yfirmaður kvaðavinnunnar og Jósafat Ahílúðsson var kallari konungs. 25 [...]