Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 24. maí – Slm 102.1–12

Bæn hrjáðs manns þá er hann örmagnast
og úthellir harmi sínum fyrir augliti Drottins.
Drottinn, heyr þú bæn mína,
hróp mitt berist til þín.
Byrg eigi auglit þitt fyrir mér
þegar ég er í nauðum staddur,
hneig eyra þitt að mér,
svara mér skjótt þegar ég kalla.
Dagar mínir líða hjá sem reykur
og bein mín brenna sem í eldi,
hjarta mitt er mornað og þornað sem gras
því að ég gleymi að eta brauð mitt.
Af kveinstöfum mínum
er ég sem skinin bein.
Ég líkist pelíkana í eyðimörkinni,
er eins og ugla í eyðirúst,
ég ligg andvaka,
líkist einmana fugli á þaki.
Fjandmenn mínir smána mig liðlangan daginn;
þeir sem hamast gegn mér nota nafn mitt til formælinga.
Já, ég neyti ösku sem brauðs,
blanda drykk minn tárum
vegna reiði þinnar og bræði
því að þú hófst mig upp og varpaðir mér aftur til jarðar.
Dagar mínir eru sem síðdegisskuggi
og ég visna sem gras.

Biblíulestur 19. maí – Slm 93.1-5

1Drottinn er konungur, skrýddur hátign, Drottinn er skrýddur, gyrtur mætti. Heimurinn er stöðugur, haggast ekki. 2Hásæti þitt stendur stöðugt frá öndverðu, frá eilífð ert þú. 3Fljótin hófu upp, Drottinn, fljótin [...]

Biblíulestur 18. maí – 2Sam 20.1-12

Uppreisn Seba 1 Á þessum tíma bjó þarna óþokki sem Seba hét Bíkríson af Benjamínsætt. Hann lét þeyta hafurshornið og hrópaði: Við eigum enga hlutdeild í Davíð, engan arfshlut í [...]

Biblíulestur 17. maí – 2Sam 19.25-44

25 Mefíbóset, sonarsonur Sáls, kom einnig niður eftir til móts við konung. Frá þeim degi, er konungur fór og þangað til hann kom aftur heill á húfi, hafði Mefíbóset hvorki [...]

Fara efst