Biblíulestur – 23. maí – Jóh 11.45–57
Margir Gyðingar sem komnir voru til Maríu og sáu það sem Jesús gerði tóku nú að trúa á hann. En nokkrir þeirra fóru til farísea og sögðu þeim hvað hann hafði gert. Æðstu prestarnir og farísearnir kölluðu þá saman ráðið og sögðu: „Hvað eigum við að gera? Þessi maður gerir mörg tákn. Ef við leyfum honum að halda svo áfram munu allir trúa á hann og þá koma Rómverjar og taka bæði helgidóm okkar og þjóð.“
En einn þeirra, Kaífas, sem það ár var æðsti prestur, sagði við þá: „Þið vitið ekkert og hugsið ekkert um það að ykkur er betra að einn maður deyi fyrir lýðinn en að öll þjóðin tortímist.“ Hann tók þetta ekki upp hjá sjálfum sér en þar sem hann var æðsti prestur það ár gat hann mælt af spámannlegri andagift að Jesús mundi deyja fyrir þjóðina og ekki fyrir þjóðina eina heldur og til að safna saman í eitt dreifðum börnum Guðs. Upp frá þeim degi voru þeir ráðnir í að taka hann af lífi.
Jesús gekk því ekki lengur um á almannafæri í Júdeu heldur fór hann þaðan til staðar í grennd við eyðimörkina, í þorp sem heitir Efraím, og þar dvaldist hann með lærisveinum sínum.
Nú nálguðust páskar Gyðinga og menn komu hvaðanæva upp til Jerúsalem fyrir páskana til að hreinsa sig. Menn leituðu að Jesú og sögðu sín á milli í helgidóminum: „Hvað haldið þið? Skyldi hann ekki koma til hátíðarinnar?“ En æðstu prestar og farísear höfðu gefið út skipun um það að ef nokkur vissi hvar hann væri skyldi hann segja til svo að þeir gætu tekið hann.
Biblíulestur 16. maí – 2Sam 19.9b-24
Davíð snýr aftur Eftir að Ísraelsmenn voru flúnir til tjalda sinna 10 tók fólk í öllum ættbálkum Ísraels að kvarta og sagði: „Konungurinn bjargaði okkur úr greipum fjandmanna okkar og [...]
Biblíulestur 15. maí – 2Sam 19.1-9
Jóab ávítar Davíð 1 Konungi var mjög brugðið, hann gekk upp í herbergið yfir borgarhliðinu og brast í grát. Á meðan hann gekk um gólf sagði hann: „Sonur minn, Absalon. [...]
Biblíulestur 14. maí – 2Sam 18.18-32
18 Absalon hafði þegar í lifanda lífi látið sækja stein og reisa sér minnisvarðann sem nú er í Kóngsdalnum. Því að hann sagði: „Ég á engan son sem getur haldið [...]
Biblíulestur 13. maí – Jóh 15.26-16.4
15. kafli 26 Þegar hjálparinn kemur, sem ég sendi yður frá föðurnum, sannleiksandinn, er út gengur frá föðurnum, mun hann vitna um mig. 27 Þér skuluð einnig vitni bera því [...]
Biblíulestur 12. maí – Slm 92.1-16
1 Sálmur. Hvíldardagsljóð. 2Gott er að lofa Drottin, lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti, 3að kunngjöra miskunn þína að morgni og trúfesti þína um nætur 4á tístrengjað hljóðfæri og hörpu [...]
Biblíulestur 11. maí – 2Sam 18.1-17
Absalon sigraður og deyddur 1 Davíð kannaði nú lið sitt og setti foringja yfir þúsund manna sveitir og hundrað manna flokka. 2 Síðan skipti hann hernum í þrjár fylkingar. Var [...]