Biblíulestur – 27. maí – Jóh 12.20–36
Meðal þeirra sem fóru upp eftir til að biðjast fyrir á hátíðinni voru nokkrir Grikkir. Þeir komu til Filippusar, sem var frá Betsaídu í Galíleu, báðu hann og sögðu: „Herra, okkur langar að sjá Jesú.“
Filippus fór og sagði Andrési það og síðan fóru þeir báðir og sögðu Jesú. Jesús svaraði þeim: „Stundin er komin að dýrð Mannssonarins verði opinber. Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr verður það áfram eitt. En ef það deyr ber það mikinn ávöxt. Sá sem elskar líf sitt glatar því en sá sem hatar líf sitt í þessum heimi mun varðveita það til eilífs lífs. Sá sem þjónar mér fylgi mér eftir og hvar sem ég er, þar mun og þjónn minn vera. Þann sem þjónar mér mun faðirinn heiðra.
Nú er sál mín skelfd og hvað á ég að gera, á ég að segja: Faðir, frelsa mig frá þessari stundu? Nei, ég er kominn til þess að mæta þessari stundu: Faðir, ger nafn þitt dýrlegt!“
Þá kom rödd af himni: „Ég hef gert það dýrlegt og mun enn gera það dýrlegt.“
Mannfjöldinn, sem hjá stóð og hlýddi á, sagði að þruma hefði riðið yfir. En aðrir sögðu: „Engill var að tala við hann.“
Jesús svaraði: „Þessi rödd kom ekki mín vegna heldur yðar vegna. Nú gengur dómur yfir þennan heim. Nú skal höfðingja þessa heims út kastað. Og þegar ég verð hafinn upp frá jörðu mun ég draga alla til mín.“ Þetta sagði hann til að gefa til kynna með hvaða hætti hann ætti að deyja.
Mannfjöldinn svaraði honum: „Lögmálið segir okkur að Kristur muni verða til eilífðar. Hvernig getur þú sagt að Mannssonurinn eigi að verða upp hafinn? Hver er þessi Mannssonur?“
Þá sagði Jesús: „Skamma stund er ljósið enn á meðal yðar. Gangið meðan þér hafið ljósið svo að myrkrið hremmi yður ekki. Sá sem gengur í myrkri veit ekki hvert hann fer. Trúið á ljósið meðan þér hafið ljósið svo að þér verðið börn ljóssins.“
Þetta mælti Jesús, fór burt og duldist.
Biblíulestur 9. júní – Slm 94.16-23
16Hver mun rísa gegn guðlausum mín vegna, hver standa með mér gegn illgjörðamönnum? 17Hefði Drottinn ekki verið hjálp mín yrði bústaður minn brátt í landi þagnarinnar. 18Þegar ég hugsa: „Mér [...]
Biblíulestur 8. júní – Matt 13.24-35
Illgresi sáð 24 Aðra dæmisögu sagði Jesús þeim: „Líkt er um himnaríki og mann er sáði góðu sæði í akur sinn. 25 En er menn voru í svefni kom óvinur [...]
Biblíulestur 7. júní – Matt 13.1-23
Sáðmaðurinn gekk út að sá 1 Sama dag gekk Jesús að heiman og settist við vatnið. 2 Svo mikill mannfjöldi safnaðist að honum að hann varð að stíga í bát [...]
Biblíulestur 6. júní – Matt 12.33-50
Af ávextinum þekkist tréð 33 Annaðhvort er tréð gott og ávöxturinn góður eða tréð vont og ávöxturinn vondur. Því af ávextinum þekkist tréð. 34 Þér nöðrukyn, hvernig getið þér, sem [...]
Biblíulestur 5. júní – Matt 12.22-32
Guðs ríki komið 22 Þá var maður færður til Jesú haldinn illum anda, blindur og mállaus. Hann læknaði hann svo að hinn mállausi gat talað og séð. 23 Allt fólkið [...]
Biblíulestur 4. júní – Matt 12.1-21
Drottinn hvíldardagsins 1 Um þessar mundir fór Jesús um sáðlönd á hvíldardegi. Lærisveinar hans kenndu hungurs og tóku að tína kornöx og eta. 2 Þegar farísear sáu það sögðu þeir [...]