Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 28. maí – Jóh 12.37–50

Þótt hann hefði gert svo mörg tákn í allra augsýn trúðu menn ekki á hann svo að rættist orð Jesaja spámanns er hann mælti:
Drottinn, hver trúði boðun vorri
og hverjum varð armur Drottins opinber?

Þess vegna gátu þeir ekki trúað enda segir Jesaja á öðrum stað:
Hann hefur blindað augu þeirra
og forhert hjarta þeirra
að þeir sjái ekki með augunum
né skilji með hjartanu og snúi sér
og ég lækni þá.

Jesaja sagði þetta af því að hann sá dýrð Jesú og talaði um hann.
Samt trúðu margir á hann, jafnvel höfðingjar, en gengust ekki við því vegna faríseanna svo að þeir yrðu ekki samkundurækir. Þeir kusu heldur heiður manna en heiður frá Guði.
En Jesús hrópaði: „Sá sem trúir á mig trúir ekki á mig heldur þann sem sendi mig og sá sem sér mig sér þann er sendi mig. Ég er ljós í heiminn komið svo að enginn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri. Ef nokkur heyrir orð mín og fer ekki eftir þeim þá dæmi ég hann ekki. Ég er ekki kominn til að dæma heiminn heldur til að frelsa heiminn. Sá sem hafnar mér og tekur ekki við orðum mínum hefur sinn dómara: Orðið, sem ég hef talað, verður dómari hans á efsta degi. Því að það sem ég tala kemur ekki frá sjálfum mér heldur hefur faðirinn, sem sendi mig, boðið mér hvað ég skuli segja og hvað ég skuli tala. Og ég veit að það sem hann býður er eilíft líf. Ég tala það eitt sem faðir minn hefur falið mér.“

Biblíulestur 15. júní – Matt 15.21-39

Kanversk kona 21 Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar. 22 Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, Drottinn, sonur Davíðs! Dóttir mín [...]

Biblíulestur 14. júní – Matt 15.1-20

Hið ytra og innra 1 Nú komu til Jesú farísear og fræðimenn frá Jerúsalem og sögðu: 2 „Hvers vegna brjóta lærisveinar þínir erfikenning forfeðranna? Þeir þvo ekki hendur sínar[ áður [...]

Biblíulestur 11. júní – Matt 13.36-52

Jesús skýrir 36 Þá skildi Jesús við mannfjöldann og fór inn. Lærisveinar hans komu til hans og sögðu: „Skýrðu fyrir okkur dæmisöguna um illgresið á akrinum.“ 37 Hann mælti: „Sá [...]

Fara efst