Biblíulestur – Uppstigningardagur 29. maí – Mrk 16.14–20
Seinna birtist Jesús þeim ellefu þegar þeir sátu til borðs og ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og þverúð hjartans, að þeir hefðu ekki trúað þeim er sáu hann upp risinn. Jesús sagði við þá: „Farið út um allan heim og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni. Sá sem trúir og skírist mun hólpinn verða en sá sem trúir ekki mun dæmdur verða. En þessi tákn munu fylgja þeim er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum, taka upp höggorma og þó að þeir drekki eitthvað banvænt mun þeim ekki verða meint af. Yfir sjúka munu þeir leggja hendur og þeir verða heilir.“
Þegar nú Drottinn Jesús hafði talað við þá var hann upp numinn til himins og settist til hægri handar Guði. Þeir fóru og prédikuðu hvarvetna og Drottinn var í verki með þeim og staðfesti boðun þeirra með táknum sem henni fylgdu.
Biblíulestur 21. júní – Matt 17.14-27
Hjálpa þú 14 Þegar þeir komu til fólksins gekk maður til Jesú, féll á kné fyrir honum 15 og sagði: „Drottinn, miskunna þú syni mínum. Hann er tunglsjúkur og illa [...]
Biblíulestur 20. júní – Matt 17.1-13
Minn elskaði sonur 1 Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans, og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir [...]
Biblíulestur 19. júní – Matt 16.13-28
Játning Péturs 13 Þegar Jesús kom í byggðir Sesareu Filippí spurði hann lærisveina sína: „Hvern segja menn Mannssoninn vera?“ 14 Þeir svöruðu: „Sumir Jóhannes skírara, aðrir Elía og enn aðrir [...]
Biblíulestur 18. júní – Matt 16.1-12
Vildu freista hans 1 Þá komu farísear og saddúkear, vildu freista Jesú og báðu hann að sýna sér tákn af himni. 2 Jesús svaraði þeim: „Að kvöldi segið þið: Það [...]
Biblíulestur 17. júní – Jóh 15.9-12 – Þjóðhátíðardagur Íslands
9 Ég hef elskað yður eins og faðirinn hefur elskað mig. Verið stöðug í elsku minni. 10 Ef þér haldið boðorð mín verðið þér stöðug í elsku minni, eins og [...]
Biblíulestur 16. júní – Slm 95.1-11
1Komið, fögnum fyrir Drottni, látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors. 2Göngum fyrir auglit hans með þakkargjörð, syngjum gleðiljóð fyrir honum. 3Því að Drottinn er mikill Guð og mikill konungur [...]