Biblíulestur – 30. maí – Jóh 13.1–17
Hátíð páskanna var að ganga í garð. Jesús vissi að stund hans var komin og að hann færi burt úr þessum heimi til föðurins. Hann hafði elskað sína, þá sem í heiminum voru. Hann elskaði þá uns yfir lauk.
Kvöldmáltíð stóð yfir. Djöfullinn hafði þegar blásið því í brjóst Júdasi, syni Símonar Ískaríots, að svíkja Jesú. Jesús vissi að faðirinn hafði lagt allt í hendur honum, að hann var frá Guði kominn og var að fara aftur til Guðs. Hann stóð upp frá máltíðinni, lagði af sér yfirhöfnina, tók líndúk og batt um sig. Síðan hellti hann vatni í mundlaug og tók að þvo fætur lærisveinanna og þerra með líndúknum sem hann hafði um sig. Hann kemur þá að Símoni Pétri sem segir við hann: „Drottinn, ætlar þú að þvo mér um fæturna?“
Jesús svaraði: „Nú skilur þú ekki hvað ég er að gera en seinna muntu skilja það.“
Pétur segir við hann: „Aldrei að eilífu skaltu þvo fætur mína.“ Jesús svaraði: „Ef ég þvæ þér ekki áttu enga samleið með mér.“ Símon Pétur segir við hann: „Drottinn, ekki aðeins fætur mína, líka hendurnar og höfuðið.“
Jesús segir við hann: „Sá sem laugast hefur þarf ekki að þvost nema um fætur. Hann er allur hreinn. Og þið eruð hreinir, þó ekki allir.“ Hann vissi hver mundi svíkja hann og því sagði hann: „Þið eruð ekki allir hreinir.“
Þegar hann hafði þvegið fætur þeirra, tekið yfirhöfn sína og sest aftur niður sagði hann við þá: „Skiljið þér hvað ég hef gert við yður? Þér kallið mig meistara og Drottin og þér mælið rétt því það er ég. Fyrst ég, sem er herra og meistari, hef nú þvegið yður um fæturna, þá ber yður einnig að þvo hver annars fætur. Ég hef gefið yður eftirdæmi að þér breytið eins og ég breytti við yður. Sannlega, sannlega segi ég yður: Þjónn er ekki meiri en herra hans né sendiboði meiri þeim er sendi hann. Þér vitið þetta og þér eruð sælir ef þér breytið eftir því.
Biblíulestur 27. júní – Matt 19.16-30
Að öðlast eilíft líf 16 Þá kom maður til Jesú og spurði: „Meistari, hvað gott á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“ 17 Jesús sagði við hann: [...]
Biblíulestur 26. júní – Matt 19.1-15
Það sem Guð hefur tengt 1 Þegar Jesús hafði lokið þessum orðum fór hann úr Galíleu og hélt til byggða Júdeu handan Jórdanar. 2 Fjöldi manna fylgdi honum og þar [...]
Biblíulestur 25. júní – Matt 18.21-35
Hve oft? 21 Þá gekk Pétur til hans og spurði: „Drottinn, hve oft á ég að fyrirgefa bróður mínum ef hann misgerir við mig? Svo sem sjö sinnum?“ 22 Jesús [...]
Biblíulestur 24. júní – Matt 11.11-15 – Jónsmessa
11 Sannlega segi ég yður: Enginn er sá af konu fæddur sem meiri sé en Jóhannes skírari. En hinn minnsti í himnaríki er honum meiri. 12 Frá dögum Jóhannesar skírara [...]
Biblíulestur 23. júní – Slm 96.1-14
1Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni, öll lönd, 2syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag. 3Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra [...]
Biblíulestur 22. júní – Matt 18.1-20
Hver er mestur? 1 Um þetta leyti komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu: „Hver er mestur í himnaríki?“ 2 Jesús kallaði til sín lítið barn, setti það meðal þeirra 3 [...]