Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 31. maí – Okv 24.1–10

Öfundaðu ekki vonda menn
og láttu þig ekki langa til að vera með þeim
því að hjarta þeirra hyggur á ofbeldi
og varir þeirra ráðgera ógæfu.
Af speki er hús reist
og af skynsemi verður það staðfast,
fyrir þekkingu fyllast herbergin
alls konar dýrum og fögrum gripum.
Vitur maður er betri en sterkur
og fróður maður betri en aflmikill,
holl ráð skalt þú hafa þegar þú heyr stríð
og þar sem ráðgjöf er næg fer allt vel.
Viskan er afglapanum ofviða,
í borgarhliðinu lýkur hann ekki upp munni sínum.
Þann sem leggur stund á að gera illt
kalla menn varmenni.
Syndin er fíflslegt fyrirtæki
og spottarinn er mönnum andstyggð.
Látir þú hugfallast á degi neyðarinnar
er máttur þinn lítill.

Biblíulestur 3. júlí – Esk 16.21-43

21 Þurftir þú líka að slátra sonum þínum og færa þá skurðgoðunum að fórn með því að láta þá ganga í gegnum eld? 22 En í öllum ódæðisverkum þínum og hórdómi minntist þú [...]

Biblíulestur 2. júlí – Esk 16.1-20

Ótrú eiginkona 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, leiddu Jerúsalem andstyggilega breytni hennar fyrir sjónir 3 og segðu: Svo segir Drottinn Guð við Jerúsalem: Þú átt ætt og uppruna í landi Kanverja. [...]

Biblíulestur 1. júlí – Lk 5.1-11

Fiskidráttur Péturs 1 Nú bar svo til að Jesús stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð. 2 Þá sá hann tvo báta við [...]

Biblíulestur 30. júní – Okv 18.1-14

1Sérlyndur maður fer að eigin geðþótta og hafnar hverju hollráði. 2Heimskinginn keppir ekki að hyggindum heldur að gera skoðanir sínar kunnar. 3Komi illmennið kemur háðungin einnig og smáninni fylgir skömm. [...]

Biblíulestur 28. júní – Matt 20.1-19

Í víngarði 1 Jesús sagði þessa dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og húsbónda einn sem gekk út árla morguns að ráða verkamenn í víngarð sinn. 2 Hann samdi við verkamennina [...]

Fara efst