Biblíulestur – 1. júní – Jóh 15.26–16.4
Þegar hjálparinn kemur, sem ég sendi yður frá föðurnum, sannleiksandinn, er út gengur frá föðurnum, mun hann vitna um mig. Þér skuluð einnig vitni bera því þér hafið verið með mér frá upphafi.
Þetta hef ég talað til yðar svo að þér fallið ekki frá. Þeir munu gera yður samkunduræk. Já, sú stund kemur að hver sem líflætur yður þykist veita Guði þjónustu. Þetta munu þeir gera af því þeir þekkja hvorki föðurinn né mig. Þetta hef ég talað til yðar til þess að þér minnist þess að ég sagði yður það þegar stund þeirra kemur.
Biblíulestur 9. júlí – Esk 18.5-20
5 Sé einhver réttlátur iðkar hann rétt og réttlæti. 6 Hann heldur ekki fórnarmáltíð á fjöllum og hefur ekki upp augu sín til skurðgoða Ísraelsmanna, hann svívirðir ekki eiginkonu náunga síns og leggst [...]
Biblíulestur 8. júlí – Matt 28.18-20
18 Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. 19 Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni [...]
Biblíulestur 7. júlí – Slm 44.1-9
1 Til söngstjórans. Kóraítamaskíl. 2Guð, með eigin eyrum höfum vér heyrt, feður vorir hafa sagt oss frá dáðum, sem þú drýgðir á dögum þeirra, á löngu liðnum tímum. 3Þú stökktir burt [...]
Biblíulestur 6. júlí – Esk 17.11-18.4
17. kafli 11 Orð Drottins kom til mín: 12 Segðu nú við hina þverúðugu þjóð: Skiljið þið þetta ekki? Segðu: Konungurinn í Babýlon kom til Jerúsalem og tók konung hennar og höfðingja og [...]
Biblíulestur 5. júlí – Esk 17.1-10
Örninn, sedrustréð og vínviðurinn 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, farðu með gátu fyrir Ísraelsmenn, flyttu þeim líkingu 3 og segðu: Svo segir Drottinn Guð: Stór örn með vítt vænghaf, mikla vængi [...]
Biblíulestur 4. júlí – Esk 16.44-63
44 Sá sem talar um þig í málsháttum hlýtur að segja: „Mær er jafnan móður lík.“ 45 Þú ert dóttir móður þinnar sem hafði andstyggð á eiginmanni sínum og börnum og þú ert [...]