Minn elskaði sonur

1 Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans, og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. 2 Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna hans skein sem sól og klæði hans urðu björt eins og ljós. 3 Og Móse og Elía birtust þeim og voru þeir á tali við Jesú. 4 Pétur tók til máls og sagði við Jesú: „Drottinn, gott er að við erum hér. Ef þú vilt skal ég gera hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“
5 Meðan Pétur var enn að tala skyggði yfir þá bjart ský og rödd úr skýinu sagði: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!“
6 Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta féllu þeir fram á ásjónur sínar og hræddust mjög. 7 Jesús gekk til þeirra, snart þá og mælti: „Rísið upp og óttist ekki.“ 8 En er þeir hófu upp augu sín sáu þeir engan nema Jesú einan.
9 Á leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim: „Segið engum frá sýninni fyrr en Mannssonurinn er risinn upp frá dauðum.“
10 Lærisveinarnir spurðu hann: „Hví segja fræðimennirnir að Elía eigi fyrst að koma?“
11 Jesús svaraði: „Víst kemur Elía og færir allt í lag. 12 En ég segi ykkur: Elía er þegar kominn og menn þekktu hann ekki heldur gerðu honum allt sem þeir vildu. Eins munu þeir láta Mannssoninn þola píslir.“
13 Þá skildu lærisveinarnir að Jesús hafði talað við þá um Jóhannes skírara.