Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 26. apríl – Okv 23.15–35

Sonur minn, verði hjarta þitt viturt,
þá gleðst ég líka í hjarta mínu
og nýru mín fagna
þegar varir þínar mæla það sem rétt er.
Öfundaðu ekki syndara í hjarta þínu
en guðhrædda menn ævinlega.
Þá áttu þér framtíð
og von þín mun aldrei bregðast.
Hlustaðu, sonur minn, vertu vitur
og beindu hjarta þínu á rétta leið.
Vertu ekki með drykkjurútum
eða þeim sem háma í sig kjöt
því að drykkjumenn og mathákar verða snauðir
og víman mun klæða þig í tötra.
Hlustaðu á föður þinn sem gat þig
og fyrirlíttu ekki móður þína þegar hún verður gömul.
Kauptu sannleika, og seldu hann ekki,
visku, fræðslu og skilning.
Faðir réttláts manns fagnar
og sá sem gat vitran son gleðst yfir honum.
Faðir þinn og móðir gleðjist
og fagni sú sem fæddi þig.
Sonur minn, gefðu mér hjarta þitt
og láttu augu þín gaumgæfa vegu mína.
Skækja er djúp gröf
og framandi kona þröngur pyttur.
Hún liggur í leyni eins og ræningi
og fjölgar hinum ótrúu meðal mannanna.
Hver barmar sér? Hver veinar? Hver á í stælum?
Hver kvartar? Hver fær sár að þarflausu? Hver rauð augu?
Þeir sem sitja við vín fram á nætur,
þeir sem koma saman til að bergja á vínblöndu.
Horfðu ekki á vínið, hve rautt það er,
hvernig það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður.
Að síðustu bítur það sem höggormur
og spýtir eitri sem naðra.
Augu þín munu sjá kynlega hluti
og munnur þinn mæla fáránleika.
Þú verður eins og sá sem liggur í úthafinu miðju,
eins og sá er liggur efst uppi á siglutré.
„Þeir slógu mig, ég kenndi ekki til,
þeir börðu mig, ég varð þess ekki var.
Þegar ég vakna af víninu fæ ég mér meira.“

Biblíulestur 23. júlí – Esk 23.11-31

11 Systir hennar, Oholíba, varð vitni að þessu. Samt var hún enn spilltari í girnd sinni en systir hennar og gekk enn lengra í ólifnaði sínum en hún. 12 Hún girntist einnig Assýringa, [...]

Biblíulestur 22. júlí – Matt 7.15-23

Af ávöxtum þeirra 15 Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. 16 Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða [...]

Biblíulestur 21. júlí – Slm 45.1-6

1 Til söngstjórans. Lag: Liljur. Kóraítamaskíl. Brúðkaupskvæði. 2Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum, konungi flyt ég kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritara. 3Fegurri ert þú öðrum mönnum, yndi streymir [...]

Biblíulestur 20. júlí – Esk 23.1-10

Systurnar Samaría og Jerúsalem 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, einu sinni voru tvær konur, dætur sömu móður. 3 Þær stunduðu ólifnað í Egyptalandi, þær hóruðust þar á æskuárum. Þar þukluðu menn brjóst [...]

Biblíulestur 19. júlí – Esk 22.17-31

Ísrael í bræðsluofninum 17 Orð Drottins kom til mín: 18 Mannssonur, Ísraelsmenn eru orðnir mér sori. Þeir eru allir kopar, tin, járn og blý í bræðsluofni. Þeir eru orðnir sorasilfur. 19 Segðu því: Svo [...]

Biblíulestur 18. júlí – Esk 22.1-16

Borgin blóði drifna 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, viltu ekki dæma, viltu ekki dæma þessa morðseku borg? Leiddu henni fyrir sjónir öll hin viðurstyggilegu verk hennar 3 og segðu: Svo segir [...]

Fara efst