Biblíulestur – 10. júní – Jóh 16.5–15
Ég hef ekki sagt yður þetta frá öndverðu af því ég var með yður. En nú fer ég til hans sem sendi mig og enginn yðar spyr mig: Hvert fer þú? En hryggð hefur fyllt hjarta yðar af því að ég sagði yður þetta. En ég segi yður sannleikann: Það er yður til góðs að ég fari burt því ef ég fer ekki kemur hjálparinn ekki til yðar. En ef ég fer sendi ég hann til yðar. Þegar hann kemur mun hann sanna heiminum hvað er synd og réttlæti og dómur. Syndin er að þeir trúðu ekki á mig, réttlætið að ég fer til föðurins og þér sjáið mig ekki lengur og dómurinn að höfðingi þessa heims er dæmdur.
Enn hef ég margt að segja yður en þér getið ekki skilið það nú. En þegar andi sannleikans kemur mun hann leiða yður í allan sannleikann. Það sem hann segir yður hefur hann ekki frá sjálfum sér heldur mun hann segja yður það sem hann heyrir og kunngjöra yður það sem koma á. Hann mun gera mig dýrlegan því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður. Allt sem faðirinn á er mitt. Því sagði ég að hann tæki af mínu og kunngjörði yður.
Biblíulestur 1. september – Slm 48.1-15
1 Ljóð. Kóraítasálmur. 2Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg Guðs vors. 3Hans heilaga fjall, sem gnæfir hátt og fagurt, er allri jörðu gleði, Síonarfjall yst í norðri, borg [...]
Biblíulestur 31. ágúst – Esk 27.1-11
Skipið Týrus ferst 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, flyttu harmljóð um Týrus. 3 Segðu þetta við Týrus, sem liggur við Ægisdyr, við kaupkonuna sem verslar við framandi [...]
Biblíulestur 30. ágúst – Esekíel 26.15-21
15 Svo segir Drottinn Guð við Týrus: Munu eyjarnar ekki nötra við dynkinn af falli þínu og stunur helsærðra þegar blóðbaðið verður skefjalaust í borginni? 16 Þá munu allir þjóðhöfðingjar [...]
Biblíulestur 29. ágúst – Esekíel 26.1-14
Gegn Týrus 1 Á fyrsta degi mánaðarins á ellefta árinu kom orð Drottins til mín: 2 Mannssonur, Týrus segir um Jerúsalem: „Hlið þjóðanna er brotið. Mér hlotnast auður hennar þar [...]
Biblíulestur 28. ágúst – Esekíel 25.1-17
Gegn Ammónítum 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur. Snúðu þér í áttina að Ammónítum, flyttu spámannlegan boðskap gegn þeim 3 og segðu við Ammóníta: Hlýðið á boðskap Drottins [...]
Biblíulestur 27. ágúst – Mt 28.1-20
Hann er upp risinn 1 Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina. 2 Þá varð landskjálfti [...]