Biblíulestur – 27. apríl – Jóh 20.19–31
Um kvöldið þennan fyrsta dag vikunnar voru lærisveinarnir saman og höfðu læst dyrum af ótta við Gyðinga. Þá kom Jesús, stóð mitt á meðal þeirra og sagði við þá: „Friður sé með yður!“ Þegar hann hafði þetta mælt sýndi hann þeim hendur sínar og síðu. Lærisveinarnir urðu glaðir er þeir sáu Drottin. Þá sagði Jesús aftur við þá: „Friður sé með yður. Eins og faðirinn hefur sent mig, eins sendi ég yður.“ Og er hann hafði sagt þetta andaði hann á þá og sagði: „Meðtakið heilagan anda. Ef þér fyrirgefið einhverjum syndirnar fyrirgefur Guð þær. Ef þér synjið einhverjum fyrirgefningar synjar Guð þeim.“
En einn af þeim tólf, Tómas, nefndur tvíburi, var ekki með þeim þegar Jesús kom. Hinir lærisveinarnir sögðu honum: „Við höfum séð Drottin.“
En hann svaraði: „Sjái ég ekki naglaförin í höndum hans og geti sett fingur minn í naglaförin og lagt hönd mína í síðu hans, mun ég alls ekki trúa.“
Að viku liðinni voru lærisveinar hans aftur saman inni og Tómas með þeim. Dyrnar voru læstar. Þá kemur Jesús, stendur mitt á meðal þeirra og segir: „Friður sé með yður!“ Síðan segir hann við Tómas: „Kom hingað með fingur þinn og sjá hendur mínar og kom með hönd þína og legg í síðu mína og vertu ekki vantrúaður, vertu trúaður.“
Tómas svaraði: „Drottinn minn og Guð minn!“
Jesús segir við hann: „Þú trúir af því þú hefur séð mig. Sælir eru þeir sem hafa ekki séð og trúa þó.“
Jesús gerði einnig mörg önnur tákn í augsýn lærisveina sinna sem eigi eru skráð á þessa bók. En þetta er ritað til þess að þið trúið að Jesús sé Kristur, sonur Guðs, og að þið í trúnni eigið líf í hans nafni.
Biblíulestur 29. júlí – Lúk 16.1-9
Ger reikningsskil 1 Enn sagði Jesús við lærisveina sína: „Maður nokkur ríkur hafði ráðsmann og var honum sagt að ráðsmaðurinn sóaði eigum hans. 2 Ríki maðurinn lét kalla ráðsmanninn fyrir sig og sagði [...]
Biblíulestur 28. júlí – Okv 18.15-24
15Hjarta hins hyggna aflar sér þekkingar og eyra hinna vitru leitar þekkingar. 16Gjöf greiðir þeim veg sem gefur og leiðir hann fram fyrir stórmenni. 17Sá er fyrst flytur mál sitt [...]
Biblíulestur 27. júlí – Matt 21.1-17
Jesú fagnað 1 Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu til Betfage við Olíufjallið sendi Jesús tvo lærisveina 2 og sagði við þá: „Farið í þorpið hér fram undan ykkur og jafnskjótt munuð þið [...]
Biblíulestur 26. júlí – Esk 24.15-27
Spámaðurinn missir konu sína 15 Orð Drottins kom til mín: 16 Mannssonur, nú svipti ég þig yndi augna þinna með sviplegum dauða. Þú skalt hvorki syrgja, gráta né fella tár. 17 Andvarpaðu í hljóði og [...]
Biblíulestur 25. júlí – Esk 24.1-14
Pottur á hlóðum 1 Orð Drottins kom til mín á tíunda degi tíunda mánaðarins í níunda árinu: 2 Mannssonur, skráðu nákvæmlega dagsetningu dagsins í dag. Konungurinn í Babýlon hóf árás á Jerúsalem einmitt [...]
Biblíulestur 24. júlí – Esk 23.32-49
32 Svo segir Drottinn Guð: Þú skalt drekka bikar systur þinnar, hinn djúpa og víða, sem tekur svo mikið. Þú skalt höfð að athlægi og spotti, 33 komast í vímu og fyllast [...]