Biblíulestur – 13. júní – Jóh 17.13–26
Nú kem ég til þín. Þetta tala ég í heiminum til þess að þeir eigi í sjálfum sér fögnuð minn fullkominn. Ég hef gefið þeim orð þitt og heimurinn hataði þá af því að þeir eru ekki af heiminum, eins og ég er ekki af heiminum. Ég bið ekki að þú takir þá úr heiminum heldur að þú varðveitir þá frá hinu illa. Þeir eru ekki af heiminum, eins og ég er ekki af heiminum. Helga þá í sannleikanum. Þitt orð er sannleikur. Ég hef sent þá í heiminn, eins og þú sendir mig í heiminn. Ég helga mig fyrir þá svo að þeir séu einnig helgaðir í sannleika.
Ég bið ekki einungis fyrir þessum heldur og fyrir þeim sem á mig trúa fyrir orð þeirra, að allir séu þeir eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, svo séu þeir einnig í okkur til þess að heimurinn trúi að þú hafir sent mig. Og ég hef gefið þeim þá dýrð sem þú gafst mér svo að þeir séu eitt, eins og við erum eitt, ég í þeim og þú í mér svo að þeir verði fullkomlega eitt til þess að heimurinn viti að þú hefur sent mig og að þú hefur elskað þá, eins og þú hefur elskað mig.
Faðir, ég vil að þeir sem þú gafst mér séu hjá mér, þar sem ég er, svo að þeir sjái dýrð mína, sem þú hefur gefið mér, af því að þú elskaðir mig fyrir grundvöllun heims. Réttláti faðir, heimurinn þekkir þig ekki en ég þekki þig, og þessir vita að þú sendir mig. Ég hef kunngjört þeim nafn þitt og mun kunngjöra svo að kærleikur þinn, sem þú hefur auðsýnt mér, sé í þeim og ég sé í þeim.“
Biblíulestur 19. september – Esk 34.17-31
17 En þú, hjörð mín, svo segir Drottinn Guð: Ég dæmi milli kindar og kindar, milli hrúta og hafra. 18 Nægir ykkur ekki að ganga í besta haglendi? Þurfið þið [...]
Biblíulestur 18. september – Esk 34.1-16
Hjörð Guðs og hirðar 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, spáðu gegn hirðum Ísraels og segðu við þá: Svo segir Drottinn Guð: Vei hirðum Ísraels sem aðeins hirða [...]
Biblíulestur 17. september – Esk 33.21-33
Frétt um fall Jerúsalem 21 Á fimmta degi tíunda mánaðar á tólfta[ árinu frá því við vorum reknir í útlegð kom flóttamaður frá Jerúsalem til mín og sagði: „Borgin er [...]
Biblíulestur 16. september – Lk 7.11-17
Grát þú eigi 11 Skömmu síðar bar svo við að Jesús hélt til borgar sem heitir Nain og lærisveinar hans fóru með honum og mikill mannfjöldi. 12 Þegar hann nálgaðist [...]
Biblíulestur 15. september – Slm 50.1-15
1 Asafssálmur.[ Guð, Drottinn Guð, talar, kallar á jörðina frá sólarupprás til sólarlags. 2Frá Síon, ímynd fegurðarinnar, birtist Guð í geisladýrð. 3Guð vor kemur og þegir ekki, fyrir honum fer [...]
Biblíulestur 14. september – Esk 33.1-20
Hjálpræði Ísraels 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, ávarpaðu landa þína og segðu við þá: Þegar ég sendi sverð gegn einhverju landi velur þjóðin mann úr sínum hópi [...]