Hjörð Guðs og hirðar

1 Orð Drottins kom til mín:
2 Mannssonur, spáðu gegn hirðum Ísraels og segðu við þá: Svo segir Drottinn Guð: Vei hirðum Ísraels sem aðeins hirða um sjálfa sig. Eiga þeir ekki að halda fénu á beit? 3 Þið drekkið mjólkina og klæðist ullinni, slátrið feitustu sauðunum en um hjörðina hirðið þið ekki. 4 Þið hafið ekki hjálpað hinu veikburða, ekki læknað hið sjúka, ekki bundið um hið særða og hvorki sótt það sem hraktist burt né leitað þess sem týndist, en hið sterka hafið þið leitt með harðri hendi. 5 Fé mitt tvístraðist þar sem hirðir var enginn og það varð villidýrum að bráð. Fé mitt tvístraðist 6og rásaði um öll fjöll og alla háa hóla. Sauðirnir úr hjörð minni dreifðust um allar jarðir en enginn spurði um þá og enginn leitaði þeirra. 7 Heyrið því, hirðar, orð Drottins: 8 Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð: Sauðunum í hjörð minni hefur verið rænt og fé mitt orðið villidýrum að bráð úti á bersvæði þar sem hirðir var enginn. Hirðar mínir leituðu ekki fjár míns en hirtu aðeins um sjálfa sig en ekki um sauði mína. 9 Heyrið því, hirðar, orð Drottins. 10Svo segir Drottinn Guð: Hlustið. Ég ætla að halda gegn hirðunum og krefjast sauða minna úr hendi þeirra. Ég læt þá hætta að hirða um fé mitt, þeir skulu ekki fá að hirða um eigin hag framar. Ég bjarga hjörð minni úr munni þeirra, hún skal ekki verða fæða þeirra framar.

Góði hirðirinn

11 Því að svo segir Drottinn Guð: Nú ætla ég sjálfur að leita sauða minna og líta eftir þeim. 12 Eins og hirðir lítur eftir hjörð sinni þegar hún er á dreif í kringum hann mun ég fylgjast með mínu fé. Ég mun bjarga sauðum mínum frá öllum þeim stöðum sem þeir dreifðust til á hinum dimma og drungalega degi. 13 Ég mun leiða þá burt frá þjóðunum, safna þeim saman úr löndunum og leiða þá heim til síns eigin lands. Ég mun halda þeim í haga á fjöllum Ísraels, í daladrögum og á hverju byggðu bóli í landinu. 14 Ég mun sjálfur halda þeim til beitar í góðu haglendi, beitiland þeirra verður á háfjöllum Ísraels. Þar munu þeir leggjast og ganga í frjósömu haglendi á fjöllum Ísraels. 15Ég mun sjálfur halda fé mínu til beitar og sjá því fyrir hvíldarstað, segir Drottinn Guð. 16 Ég mun leita þess sem villist og sækja hið hrakta, binda um hið limlesta og styrkja hið veikburða. Ég mun gæta hins feita og þróttmikla og halda því í haga eins og rétt er.