Biblíulestur – 13. júní – Jóh 17.13–26
Nú kem ég til þín. Þetta tala ég í heiminum til þess að þeir eigi í sjálfum sér fögnuð minn fullkominn. Ég hef gefið þeim orð þitt og heimurinn hataði þá af því að þeir eru ekki af heiminum, eins og ég er ekki af heiminum. Ég bið ekki að þú takir þá úr heiminum heldur að þú varðveitir þá frá hinu illa. Þeir eru ekki af heiminum, eins og ég er ekki af heiminum. Helga þá í sannleikanum. Þitt orð er sannleikur. Ég hef sent þá í heiminn, eins og þú sendir mig í heiminn. Ég helga mig fyrir þá svo að þeir séu einnig helgaðir í sannleika.
Ég bið ekki einungis fyrir þessum heldur og fyrir þeim sem á mig trúa fyrir orð þeirra, að allir séu þeir eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, svo séu þeir einnig í okkur til þess að heimurinn trúi að þú hafir sent mig. Og ég hef gefið þeim þá dýrð sem þú gafst mér svo að þeir séu eitt, eins og við erum eitt, ég í þeim og þú í mér svo að þeir verði fullkomlega eitt til þess að heimurinn viti að þú hefur sent mig og að þú hefur elskað þá, eins og þú hefur elskað mig.
Faðir, ég vil að þeir sem þú gafst mér séu hjá mér, þar sem ég er, svo að þeir sjái dýrð mína, sem þú hefur gefið mér, af því að þú elskaðir mig fyrir grundvöllun heims. Réttláti faðir, heimurinn þekkir þig ekki en ég þekki þig, og þessir vita að þú sendir mig. Ég hef kunngjört þeim nafn þitt og mun kunngjöra svo að kærleikur þinn, sem þú hefur auðsýnt mér, sé í þeim og ég sé í þeim.“
Biblíulestur 24. september – Esk 36.16-38
Endurreisn Ísraels 16 Orð Drottins kom til mín: 17 Mannssonur, þegar Ísraelsmenn bjuggu í landi sínu saurguðu þeir það með breytni sinni og verkum. Breytni þeirra var í mínum augum [...]
Biblíulestur 23. september – Lk 14.1-11
Gátu engu svarað 1 Hvíldardag nokkurn kom Jesús í hús eins af höfðingjum farísea til máltíðar og höfðu menn gætur á honum. 2 Þá var þar frammi fyrir honum maður [...]
Biblíulestur 22. september – Slm 50.16-23
16En við hinn óguðlega segir Guð: „Hví þylur þú boðorð mín og tekur sáttmála minn þér í munn 17þar sem þú hatar aga og snýrð baki við orðum mínum? 18Sjáir [...]
Biblíulestur 21. september – Esk 36.1-15
Ísraels fjöll munu blómgast 1 Þú, mannssonur, spá fyrir fjöllum Ísraels og seg: Ísraelsfjöll. Heyrið orð Drottins. 2 Svo segir Drottinn Guð: Fjandmennirnir hafa sagt um ykkur: Ævarandi auðn. Hún [...]
Biblíulestur 20. september – Esk 35.1-15
Dómur yfir Seír 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Mannssonur, snúðu þér að Seírfjalli, spáðu gegn því 3 og segðu: Svo segir Drottinn Guð: Nú held ég gegn þér, [...]
Biblíulestur 19. september – Esk 34.17-31
17 En þú, hjörð mín, svo segir Drottinn Guð: Ég dæmi milli kindar og kindar, milli hrúta og hafra. 18 Nægir ykkur ekki að ganga í besta haglendi? Þurfið þið [...]