17 En þú, hjörð mín, svo segir Drottinn Guð: Ég dæmi milli kindar og kindar, milli hrúta og hafra. 18 Nægir ykkur ekki að ganga í besta haglendi? Þurfið þið að traðka það niður sem eftir er af haga ykkar? Þegar þið hafið drukkið tært vatn, þurfið þið þá að grugga það sem eftir er með fótunum? 19 Þá verða sauðirnir í hjörð minni að vera á beit í flaginu sem fætur ykkar hafa traðkað og drekka það sem fætur ykkar hafa gruggað. 20 Þess vegna segir Drottinn Guð við ykkur: Ég mun sjálfur dæma milli vænna sauða og magurra. 21 Þar sem þið ryðjið öllum hinum veikburða úr vegi með hupp og bógi og stangið þá með hornunum þar til þið hafið hrakið þá í burtu 22 ætla ég að hjálpa sauðum mínum svo að þeir verði ekki framar teknir sem ránsfengur. Ég mun dæma milli kindar og kindar. 23 Ég mun setja einn hirði yfir þá sem mun halda þeim í haga, þjón minn Davíð. Hann mun halda þeim í haga og hann verður hirðir þeirra. 24 Ég sjálfur, Drottinn, verð Guð þeirra en Davíð, þjónn minn, verður höfðingi á meðal þeirra. Ég, Drottinn, hef talað.
25 Ég mun gera sáttmála við þá þeim til heilla og eyða rándýrum úr landinu. Þá munu þeir búa óhultir í eyðimörkinni og sofa í skógunum. 26 Ég læt þá og umhverfi hæðar minnar bera blessun og ég mun senda regn á réttum tíma, regn til blessunar. 27 Trén á sléttunni skulu bera ávöxt og landið gefa af sér og þeir verða óhultir í landi sínu. Þeir munu skilja að ég er Drottinn þegar ég brýt okið af þeim og frelsa þá úr greipum þeirra sem þrælka þá. 28 Þeir skulu ekki framar verða ránsfengur framandi þjóða og villidýrin í landinu munu ekki heldur rífa þá í sig. Þeir munu búa óhultir og enginn mun hrekja þá í burtu.
29 Þeim til heilla mun ég rækta þeim garð[ svo að þeir verði ekki framar hungri að bráð í landinu og þurfi ekki að þola smánaryrði framandi þjóða. 30 Þá munu þeir skilja að ég, Drottinn, er Guð þeirra. Ég er með þeim og Ísraelsmenn eru þjóð mín, segir Drottinn Guð.
31 Þið eruð hjörð mín sem ég held í haga. Ég er Guð ykkar, segir Drottinn Guð.