Biblíulestur – 5. júlí – Slm 103.1–10
Davíðssálmur.
Lofa þú Drottin, sála mín,
og allt sem í mér er, hans heilaga nafn;
lofa þú Drottin, sála mín,
og gleym eigi neinum velgjörðum hans.
Hann fyrirgefur allar misgjörðir þínar,
læknar öll þín mein,
leysir líf þitt frá gröfinni,
krýnir þig náð og miskunn.
Hann mettar þig gæðum,
þú yngist upp sem örninn.
Drottinn fremur réttlæti
og veitir rétt öllum kúguðum.
Hann gerði Móse vegu sína kunna
og Ísraelsbörnum stórvirki sín.
Náðugur og miskunnsamur er Drottinn,
þolinmóður og mjög gæskuríkur.
Hann þreytir eigi deilur um aldur
og er eigi eilíflega reiður.
Hann hefur eigi breytt við oss eftir syndum vorum
og eigi goldið oss eftir misgjörðum vorum
Biblíulestur 3. febrúar – Matt 14.22-33
Það er ég 22 Tafarlaust knúði Jesús lærisveina sína að fara í bátinn og halda á undan sér yfir um meðan hann sendi fólkið brott. 23 Og er hann hafði [...]
Biblíulestur 2. febrúar – Slm 61.1-9
1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Eftir Davíð. 2Heyr kvein mitt, Guð, hlusta á bæn mína. 3Ég hrópa til þín frá endimörkum jarðar því að hjarta mitt örvæntir. 4Hef mig upp [...]
Biblíulestur 1. febrúar – Lúk 4.31-44
Í Kapernaúm 31 Jesús kom nú ofan til Kapernaúm, borgar í Galíleu, og kenndi þeim á hvíldardegi. 32Urðu menn mjög snortnir af kenningu hans því að vald fylgdi orðum hans. [...]
Biblíulestur 31. janúar – Lúk 4:16-30
16 Jesús kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp, og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa. 17 Var honum fengin [...]
Biblíulestur 30. janúar – Lúk 4.1-15
Freistingar 1 En Jesús sneri aftur frá Jórdan, fullur af heilögum anda. Andinn leiddi hann og í fjörutíu daga var hann í eyðimörkinni 2 þar sem djöfullinn freistaði hans. Ekki [...]
Biblíulestur 29. janúar – Lúk 3.23-38
Ættartala 23 En Jesús var um þrítugt er hann hóf starf sitt. Var hann, eftir því sem haldið var, sonur Jósefs, sonar Elí, 24 sonar Mattats, sonar Leví, sonar Melkí, [...]