Biblíulestur – 6. júlí – Lúk 15.1–10
Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: „Þessi maður tekur að sér syndara og samneytir þeim.“
En Jesús sagði þeim þessa dæmisögu: „Nú á einhver yðar hundrað sauði og týnir einum þeirra. Skilur hann ekki þá níutíu og níu eftir í óbyggðinni og fer eftir þeim sem týndur er þar til hann finnur hann? Og glaður leggur hann sauðinn á herðar sér er hann finnur hann. Þegar hann kemur heim kallar hann saman vini sína og nágranna og segir við þá: Samgleðjist mér því að ég hef fundið sauðinn minn sem týndur var. Ég segi yður, þannig verður meiri fögnuður á himni yfir einum syndara, sem tekur sinnaskiptum, en yfir níutíu og níu réttlátum sem þurfa þess ekki við.
Eða kona sem á tíu drökmur og týnir einni drökmu, kveikir hún þá ekki á lampa, sópar húsið og leitar vandlega uns hún finnur hana? Og er hún hefur fundið hana kallar hún saman vinkonur sínar og grannkonur og segir: Samgleðjist mér því að ég hef fundið drökmuna sem ég týndi. Þannig segi ég yður að englar Guðs munu gleðjast yfir einum syndara sem bætir ráð sitt.“
Biblíulestur 9. febrúar – Slm 62.1-13
1 Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Davíðssálmur. 2Hjá Guði einum hlýtur sál mín hvíld, frá honum kemur hjálpræði mitt. 3Hann einn er klettur minn og hjálpræði, vígi mitt, mér skrikar ekki [...]
Biblíulestur 8. febrúar – Lúk 6.20-36
Sælir eruð þér 20 Þá hóf Jesús upp augun, leit á lærisveina sína og sagði: „Sælir eruð þér, fátækir, því að yðar er Guðs ríki. 21Sælir eruð þér sem nú [...]
Biblíulestur 7. febrúar – Lúk 6.6-19
6 Annan hvíldardag gekk Jesús í samkunduna og kenndi. Þar var maður nokkur með visna hægri hönd. 7 En fræðimenn og farísear höfðu nánar gætur á Jesú, hvort hann læknaði [...]
Biblíulestur 6. febrúar – Lúk 5.33-6.5
5. kafli Um föstu 33 En farísearnir og fræðimennirnir sögðu við Jesú: „Lærisveinar Jóhannesar fasta oft og fara með bænir og eins lærisveinar okkar en þínir eta og drekka.“ 34 [...]
Biblíulestur 5. febrúar – Lúk 5.17-32
Jesús læknar lama mann 17 Dag nokkurn var Jesús að kenna. Þar sátu farísear og lögmálskennendur, komnir úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og frá Jerúsalem, og kraftur Drottins [...]
Biblíulestur 4. febrúar – Lúk 5.1-16
Fiskidráttur Péturs 1 Nú bar svo til að Jesús stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð. 2 Þá sá hann tvo báta við [...]