Fiskidráttur Péturs

1 Nú bar svo til að Jesús stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð. 2 Þá sá hann tvo báta við vatnið en fiskimennirnir voru farnir í land og þvoðu net sín. 3 Hann fór út í þann bátinn er Símon átti og bað hann að leggja lítið eitt frá landi, settist og tók að kenna mannfjöldanum úr bátnum.
4 Þegar hann hafði lokið ræðu sinni sagði hann við Símon: „Legg þú út á djúpið og leggið net ykkar til fiskjar.“
5 Símon svaraði: „Meistari, við höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið en fyrst þú segir það skal ég leggja netin.“ 6 Nú gerðu þeir svo og fengu þeir þá mikinn fjölda fiska en net þeirra tóku að rifna. 7 Bentu þeir þá félögum sínum á hinum bátnum að koma og hjálpa sér. Þeir komu og hlóðu báða bátana svo að nær voru sokknir.
8 Þegar Símon Pétur sá þetta féll hann á kné frammi fyrir Jesú og sagði: „Far þú frá mér, Drottinn, því að ég er syndugur maður.“ 9 En felmtur kom á hann og alla þá sem með honum voru vegna fiskaflans er þeir höfðu fengið. 10 Eins var um Jakob og Jóhannes Sebedeussyni, félaga Símonar. Jesús sagði þá við Símon: „Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða.“
11 Og þeir lögðu bátunum að landi, yfirgáfu allt og fylgdu honum.

Jesús læknar líkþráan

12 Svo bar við, er Jesús var í einni borginni, að þar var maður altekinn líkþrá. Hann sá Jesú, féll fram fyrir honum og bað hann: „Drottinn, ef þú vilt getur þú hreinsað mig.“[
13 Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: „Ég vil, verð þú hreinn!“ Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin. 14 Og hann bauð honum að segja þetta engum. „En far þú,“ sagði hann, „sýn þig prestinum og fórna fyrir hreinsun þína eins og Móse bauð, þeim til vitnisburðar.“
15 En fregnin um Jesú breiddist út því meir og menn komu hópum saman til að hlýða á hann og læknast af meinum sínum. 16 En Jesús dró sig í hlé og fór til óbyggðra staða og baðst þar fyrir.