Biblíulestur – 4. júlí – 5Mós 1.34–46
Þegar Drottinn heyrði það sem þið sögðuð reiddist hann og sór: „Enginn af þessari illu kynslóð skal fá að sjá landið góða, sem ég sór að gefa forfeðrum ykkar, nema Kaleb Jefúnneson, hann skal sjá það. Ég mun gefa honum og sonum hans landið sem hann hefur stigið á því að hann hefur fylgt Drottni heils hugar.“ Drottinn reiddist mér einnig vegna ykkar og sagði: „Þú skalt ekki heldur komast þangað. En Jósúa Núnsson, sem þjónar þér, skal komast þangað. Stappaðu í hann stálinu því að hann á að skipta landinu í erfðalönd handa Ísrael. En börn ykkar, sem þið sögðuð að yrðu tekin herfangi, og synir ykkar, sem enn kunna ekki skil góðs og ills, munu komast þangað og þeim mun ég fá landið og þeir munu taka það til eignar. En þið skuluð snúa aftur í átt til eyðimerkurinnar og halda áleiðis til Sefhafsins.“
Þið svöruðuð og sögðuð við mig: „Við höfum syndgað gegn Drottni. En nú skulum við fara og berjast eins og Drottinn, Guð okkar, bauð.“ Því næst bjóst hver og einn ykkar herklæðum, tók vopn sín og taldi það hægðarleik að halda upp í fjalllendið.
En Drottinn sagði við mig: „Segðu við þá: Þið skuluð ekki fara og berjast því að ég verð ekki með ykkur. Ella bíðið þið ósigur fyrir fjandmönnum ykkar.“ Ég sagði ykkur þetta en þið hlustuðuð ekki og risuð gegn boði Drottins. Í ofdirfsku ykkar fóruð þið upp í fjalllendið og Amorítarnir, sem búa í þessu fjalllendi, réðust gegn ykkur, ráku ykkur á flótta og eltu ykkur eins og býflugnager og tvístruðu ykkur frá Seír allt til Horma. Þegar þið komuð aftur grétuð þið frammi fyrir Drottni. En hann heyrði ekki kveinstafi ykkar og hlustaði ekki á ykkur. Síðan voruð þið langa hríð um kyrrt í Kades, allan þann tíma sem þið dvöldust þar.
Biblíulestur 28. janúar – Lúk 3.1-22
Jóhannes skírir og kennir 1 Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus, bróðir hans, í Ítúreu og Trakónítishéraði og [...]
Biblíulestur 27. janúar – Lúk 17.5-10
Trú 5 Postularnir sögðu við Drottin: „Auk oss trú!“ 6 En Drottinn sagði: „Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: Ríf þig upp með [...]
Biblíulestur 26. janúar – Okv 21.16-31
16Sá maður sem villist af vegi viskunnar mun brátt hvílast í samneyti framliðinna. 17Öreigi verður sá sem sólginn er í skemmtanir, sá sem sólginn er í vín og olíu verður [...]
Biblíulestur 25. janúar – Lúk 2.41-52
Jesús tólf ára 41 Foreldrar Jesú ferðuðust ár hvert til Jerúsalem á páskahátíðinni. 42 Þegar hann var tólf ára fóru þau upp þangað eins og þau voru vön og tóku [...]
Biblíulestur 24. janúar – Lúk 2.22-40
Jesús færður Drottni 22 En er hreinsunardagar þeirra voru úti eftir lögmáli Móse fóru þau með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni, 23 en svo er ritað [...]
Biblíulestur 23. janúar – Lúk 21.25-36
Mannssonurinn kemur 25 Tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á jörðu angist þjóða, ráðalausra við dunur hafs og brimgný. 26 Menn munu falla í öngvit af ótta [...]