Biblíulestur – 3. júlí – 5Mós 1.19–33
Því næst héldum við af stað frá Hóreb og fórum gegnum alla þessa miklu og skelfilegu eyðimörk sem þið hafið sjálf séð. Við fórum áleiðis til fjalllendis Amoríta eins og Drottinn, Guð okkar, hafði boðið. Þegar við komum til Kades Barnea sagði ég við ykkur: „Nú eruð þið komin að fjalllendi Amoríta sem Drottinn, Guð okkar, gefur okkur. Sjá! Drottinn, Guð þinn, hefur fengið þér landið í hendur. Farðu þangað og taktu það til eignar eins og Drottinn, Guð feðra þinna, hefur boðið þér. Óttastu ekki og láttu ekki hugfallast!“
Þá komuð þið öll til mín og sögðuð: „Við skulum senda nokkra menn á undan okkur til þess að kanna landið fyrir okkur. Þeir geta síðan lýst leiðinni, sem við eigum að fara, og borgunum sem við eigum að fara inn í.“ Mér féll þetta vel í geð og valdi úr hópi ykkar tólf menn, einn úr hverjum ættbálki. Þeir héldu á leið til fjalllendisins og fóru upp í Eskóldal og könnuðu hann. Þeir tóku með sér nokkuð af ávöxtum landsins og færðu okkur og sögðu: „Það er gott land sem Drottinn, Guð okkar, gefur okkur.“
En þið neituðuð að fara þangað upp eftir og risuð gegn boðum Drottins, Guðs ykkar. Þið mögluðuð í tjöldum ykkar og sögðuð: „Drottinn leiddi okkur út úr Egyptalandi af því að hann hatar okkur. Hann ætlar að selja okkur Amorítum í hendur svo að þeir tortími okkur. Hvert erum við að fara? Bræður okkar gerðu okkur skelfingu lostin. Þeir segja þjóðina hærri vexti og fjölmennari en okkur, borgirnar miklar og girtar múrum sem gnæfa við himin, og segjast auk þess hafa séð Anakíta þar.“
Þá sagði ég við ykkur: „Óttist þá ekki og verið ekki hrædd. Drottinn, Guð ykkar, sem fer fyrir ykkur, mun berjast fyrir ykkur eins og hann gerði fyrir augum ykkar í Egyptalandi. Í eyðimörkinni sást þú hvernig Drottinn, Guð þinn, bar þig eins og maður ber son sinn hvert sem þið fóruð uns þið komuð á þennan stað.“ En þrátt fyrir þetta trúðuð þið ekki á Drottin, Guð ykkar, sem gekk á undan ykkur á leiðinni til að finna tjaldstað handa ykkur. Hann fór fyrir ykkur um nætur í eldi en um daga í skýi til að vísa ykkur veginn sem þið áttuð að halda.
Biblíulestur 22. janúar – Lúk 2.1-21
Lagður í jötu 1 En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. 2Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá [...]
Biblíulestur 21. janúar – Lúk 1.67-80
Lofsöngur Sakaría 67 En Sakaría faðir hans fylltist heilögum anda og mælti af spámannlegri andagift: 68 Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið [...]
Biblíulestur 20. janúar – Lúk 19.1-10
Leita hins týnda og frelsa 1 Jesús kom til Jeríkó og gekk gegnum borgina. 2 En þar var maður er Sakkeus hét. Hann var yfirtollheimtumaður og auðugur. 3 Langaði hann [...]
Biblíulestur 19. janúar – Slm 60.1-14
1 Til söngstjórans. Lag: Vitnisburðarliljan. Miktam eftir Davíð, til fræðslu, 2 þá er hann barðist við Sýrlendinga frá Mesópótamíu og Sýrlendinga frá Sóba og Jóab sneri við og vann sigur [...]
Biblíulestur 18. janúar – Lúk 1.46-66
Lofsöngur Maríu 46 Og María sagði: Önd mín miklar Drottin 47 og andi minn gleðst í Guði, frelsara mínum. 48 Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð [...]
Biblíulestur 17. janúar – Lúk 1.26-45
Boðun Maríu 26 En í sjötta mánuði sendi Guð Gabríel engil til borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret, 27 til meyjar er var föstnuð manni, sem Jósef hét, af ætt [...]