Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – Uppstigningardagur 29. maí – Mrk 16.14–20

Seinna birtist Jesús þeim ellefu þegar þeir sátu til borðs og ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og þverúð hjartans, að þeir hefðu ekki trúað þeim er sáu hann upp risinn. Jesús sagði við þá: „Farið út um allan heim og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni. Sá sem trúir og skírist mun hólpinn verða en sá sem trúir ekki mun dæmdur verða. En þessi tákn munu fylgja þeim er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum, taka upp höggorma og þó að þeir drekki eitthvað banvænt mun þeim ekki verða meint af. Yfir sjúka munu þeir leggja hendur og þeir verða heilir.“
Þegar nú Drottinn Jesús hafði talað við þá var hann upp numinn til himins og settist til hægri handar Guði. Þeir fóru og prédikuðu hvarvetna og Drottinn var í verki með þeim og staðfesti boðun þeirra með táknum sem henni fylgdu.

Biblíulestur 15. febrúar – Sef 2.12-3.5

2. kafli 12Þér, Eþíópíumenn, fallið einnig fyrir sverði mínu. 13Hann mun hefja arm sinn gegn norðri og tortíma Assýríu, gera Níníve að auðn, að vatnslausri eyðimörk. 14Þar munu hjarðir liggja, [...]

Biblíulestur 14. febrúar – Sef 2.4-11

Ræður gegn þjóðunum 4Því að Gasa verður yfirgefin og Askalon fer í eyði. Íbúar Asdódborgar munu hraktir burt um hábjartan dag og Ekron verður lögð í eyði. 5Vei þér, þjóð [...]

Biblíulestur 12. febrúar – Sef 1.1-13

1 Orð Drottins sem kom til Sefanía Kúsísonar, Gedaljasonar, Amarjasonar, Hiskíasonar á dögum Jósía Amónssonar Júdakonungs. Eyðingin mikla 2Ég mun gereyða öllu af yfirborði jarðar, segir Drottinn. 3Ég mun eyða [...]

Fara efst